Fréttablaðið - 14.02.2008, Page 10
10 14. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
FRAMKVÆMDIR Fjórir aðilar vega
nú og meta útboðsskilmála vegna
nýrrar ferju sem sigla á milli
Vestmannaeyja og Bakkafjöru í
Landeyjum.
Að undangengnu forvali var
Eimskipi, Nýsi, Samskipum og
fyrirtæki Vinnslustöðvarinnar og
Vestmannaeyjabæjar gefinn
kostur á að bjóða í verkið.
Útboðsgögn voru send út í jan-
úar og rennur frestur til að skila
inn tilboðum í byrjun apríl.
Í skýrslu stýrihóps um Bakka-
fjöruhöfn er gert ráð fyrir að
ferjan – sem líkt og forverinn
kallast Herjólfur – kosti rúmlega
1,7 milljarða króna. Verktakinn
skal útvega, eiga og reka ferjuna
samkvæmt ítarlegum skilmálum
um ferðafjölda, stærð og sjó-
hæfni.
Samhliða þessu er verið að
ljúka nauðsynlegri skipulags-
vinnu vegna hafnarmannvirkja í
Bakkafjöru. Er vonast til að ljúka
megi vegagerð í sumar svo að
hægt verði að hefja sjálfa hafnar-
gerðina.
Miðað er við að siglingar nýs
Herjólfs milli Bakkafjöru og Eyja
geti hafist árið 2010. - bþs
Nýr Herjólfur og 5,6 milljarða framkvæmdir:
Fjórir eru að íhuga
rekstur nýs Herjólfs
5,6 MILLJARÐAR KRÓNA
Kostnaðaráætlun stýrihóps
Verkliður Kostnaður
Undirbúningur og hönnun 300
Aðst.sköpun og bráðab.vegur 360
Fyrirstöðugarðar 190
Skjólgarðar hafnar og dýpkun 1.770
Ferjubryggja og aðstaða 800
Ferja 1.730
Vegagerð 450
FJÁRHÆÐIR ERU Í MILLJÓNUM KRÓNA
HERJÓLFUR Gangi áætlanir eftir hefur nýtt skip siglingar milli lands og Eyja árið 2010.
A
ug
lý
si
ng
as
ím
i
– Mest lesið