Fréttablaðið - 14.02.2008, Page 11
FIMMTUDAGUR 14. febrúar 2008
STJÓRNMÁL Frumvarp
Össurar Skarphéðins-
sonar iðnaðarráðherra
um orkumál er enn til
meðferðar í þingflokki
Sjálfstæðisflokksins.
Ríkisstjórnin hefur
þegar samþykkt frum-
varpið fyrir sitt leyti
sem og þingflokkur
Samfylkingarinnar.
Arnbjörg Sveinsdótt-
ir, þingflokksformaður
Sjálfstæðisflokksins,
telur að umfjöllun
flokksins sé langt komin
og vonast til að verkinu
ljúki á næsta fundi þing-
flokksins. Fulltrúar
flokks ins í iðnaðarnefnd
hafa haft frumvarpið til
sérstakrar meðferðar en
þeir eru Kristján Þór
Júlíusson, Björk Guð-
jónsdóttir, Herdís Þórð-
ardóttir og Ragnheiður
Elín Árnadóttir.
Kristján Þór segir þau hafa
gefið sér góðan tíma til
að fara yfir málið sem sé
stórt og umfangsmikið
og taki á mörgum prins-
ippmálum. Hann vill ekk-
ert segja til um hvort
lagðar verði til umfangs-
miklar breytingar á efni
þess.
Spurður hvort líklegt
sé að málið verði klárað á
næsta þingflokksfundi
segist Kristján vona það.
Hann segir þó að vika eða
mánuður til eða frá skipti
ekki máli í hans huga
enda lögunum ætlað að
gilda um ár og áratugi.
„Við vöndum okkur við
hlutina,“ segir Kristján.
Í frumvarpinu er skil-
ið á milli samkeppnis-
starfsemi og almanna-
þjónustu í rekstri
orkufyrirtækja og kveð-
ið á um að orkuauðlindir
sem eru í samfélagslegri forsjá
verði það áfram. - bþs
Orkumálafrumvarp enn í þingflokki sjálfstæðismanna:
Vonast til að klára
málið á næsta fundi
ARNBJÖRG
SVEINSDÓTTIR
KRISTJÁN ÞÓR
JÚLÍUSSON
HELLISHEIÐARVIRKJUN Í orkumálafrumvarpi iðnaðarráðherra er kveðið á um að
orkuauðlindir sem eru í samfélagslegri forsjá verði það áfram.