Fréttablaðið - 14.02.2008, Page 55

Fréttablaðið - 14.02.2008, Page 55
FIMMTUDAGUR 14. febrúar 2008 31 UMRÆÐAN Stjórnmál Mig langar að hafa hér uppi stutta hugleið- ingu um það hvernig stjórnmálamenn og aðrir talsmenn stjórnmála- flokka geta best orðið flokkum sínum og lýð- ræðinu að liði í ræðu og riti, að ekki sé minnst á aðra starfshætti og framgöngu. Meginskoðun mín er sú, að svo tali menn best máli flokka sinna að þeir séu „málefnalegir“ í þeim skilningi að þeir kynni skilmerki- lega stefnu og störf flokka sinna en sleppi því sem verða má að útmála störf og stefnu andstæðinga, oft með yfirlæti og útúrsnúningum. Sífelld árásarmælska á ekkert skylt við þá „samræðupólitík“, sem hrósa má, en þrífst illa hér á landi. Góðar fyrirmyndir Nú er mér það ljóst að góð meining gerir oft litla stoð, því menn eru breyskir, guði sé lof! Öfgafullt hreinlífi í tali og hegðun getur snúist upp í andhverfu sína. En ruddaskapur og árásarárátta sem á sumum er, lýsir vondu uppeldi og í sumum tilfellum vondu innræti. Persónulega velktist ég í pólitík áratugum saman og hlaut vafalaust ýmsar skrokkskjóður, en hef löngu gleymt þeim. Á þessum langa ferli mínum kynntist ég sæg manna við ýmis tækifæri, ekki síst alþingis- mönnum. Yfirleitt voru það góð kynni þótt ekki væru allir steyptir í sama mótið. Ég ætla að nefna tvo menn, sinn úr hvorum stjórnmálaflokki, sem segja má að stóðust það skilyrði góðs málflutnings að menn séu mál- efnalegir og lausir við persónu- legar ýfingar við andstæðinga að tilefnislausu. Þessir menn voru Eysteinn Jónsson, einn af aðalfor- ustumönnum Framsóknarflokksins í rúm 40 ár, og Jónas G. Rafnar úr Sjálfstæðisflokknum, lengi þing- maður Akureyrar og síðar Norður- landskjördæmis eystra. Eysteini bauð við persónuníði og kallaði það heimsku að gera pólitíska andstæð- inga að persónulegum fjandmönn- um. Jónas Rafnar var okkur þing- mönnum Norðurlandskjördæmis eystra góð fyrirmynd um siðmann- lega pólitík og gleymi ég þá ekki samflokksmönnum mínum Karli Kristjánssyni og Gísla Guðmunds- syni, sem voru sömu gerðar. Á Alþingi á minni tíð báru kvenna- listakonur af um siðmannlegan og rökfastan málflutning. En hvað kemur mér til að setja þessi orð á blað eins og ég sé ein- hver siðapostuli – sem ég er ekki! Því er til að svara að ég held að hug- leiðing mín hafi gildi í lýðræðis- þjóðfélagi, sem býr við fjölflokka- kerfi og virðir það. Lýðræði og þingræði í norrænum skilningi þrífst ekki nema á grundvelli pólit- ískrar fjölhyggju, sem gerir marg- flokkakerfið óhjákvæmilegt og eðlilegt. Vitaskuld er ég ekki að mæla með því, að í stjórnmálaum- ræðum á fundum og í fjöl- miðlum séu menn sífellt með ást og eindrægni á vörunum og ákalli lýðræð- ið sem guðlega veru, fyrr má nú rota en dauðrota, enda eru stjórnmál jarð- bundin og eiga að vera það. Hins vegar ber stjórnmála- mönnum að virða og viður- kenna fjölflokkakerfið og þar með andstæða flokka og talsmenn þeirra. Þeim ber að temja sér siðmannlega gagn- rýni. Hugsað til Framsóknarflokksins Læt ég þá lokið þessum almennu hugleiðingum, en ætla að leyfa mér að beina máli mínu sérstaklega til flokksmanna minna. Framsóknar- menn þurfa mjög að hugsa sitt ráð. Þeim er nú meiri þörf að snúa ræðu sinni inn á við en eyða of miklum tíma í að útmála artir andstæðing- anna. Ekki þar fyrir, Framsóknar- flokkurinn stendur ekki í neinni þakkarskuld við andstæðinga sína hin síðari ár fyrir býsna blóðugar árásir á flokkinn. Varla verður sagt að framsóknarforustan hafi varist fimlega eða búist til sóknar af herkænsku. Þess vegna eiga fram- sóknarmenn nú að horfa inn á við, skoða í sinn eigin barm. Þó heyri ég flokksmenn mína suma hverja æmta út af því að flokkurinn hafi „misst af völdun- um“, rétt eins og það sé eitthvert slys eða óréttlæti þó að gamal- reyndur flokkur og löngum mikils- ráðandi í ríkisstjórnum lendi í stjórnarandstöðu eftir slaka út komu í alþingiskosningum. Sjálf- sagt munu margir vilja fá fyllri skýringu á því hvað ég á við með því að segja að forustu Framsókn- arflokksins beri að líta í sinn eigin barm. Sú ábending mín er vitaskuld margslungin. En augljóst er að framsóknarmenn þurfa að spurja sig margra spurninga. Það er ekki endilega mitt hlutverk að semja spurningarnar eða stjórna spurn- ingaleiknum. En í allri auðmýkt bið ég forustu- fólk flokksins að hugsa vel sitt ráð. Það verður ekki barist til sóknar með sundrað lið. Rifjið upp söguna, lærið af reynslunni. Vissulega snúast stjórnmál um núið. En hygg- ið að rótunum. Nútíð Framsóknar- flokksins á sér rótfestu í sögunni og að sjálfsögðu framtíðin. Enginn efast um að tíminn er hraðfleygur, þjóðfélagsaðstæður breytast ört, en það er út af fyrir sig ekkert nýtt. Framsóknarflokkurinn hefur fyrr orðið að laga sig að þjóðfélags- breytingum og átt sinn þátt í þeim. En stefnu sína verður flokkurinn að miða við rótföst grunngildi, aðlagast breytingum á réttum for- sendum. En það á vafalaust við um aðra stjórnmálaflokka og önnur valdaöfl í þjóðfélaginu. Nútíminn hefur staðið sig vel í því að fjar- lægjast tæknistig miðalda, en stjórnmálamenn samtímans ættu ekki síður að virða lýðræðið og hreinsa pólitíkina af stjórnarhátt- um miðaldamanna. Höfundur er fyrrverandi ráðherra. Hugleiðing um siðleg stjórnmál INGVAR GÍSLASON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.