Fréttablaðið - 14.02.2008, Síða 60
36 14. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hvað er að
gerast? Ætlið
þið að flytja
saman bráð-
lega, eða?
Rólegur,
rólegur,
rólegur,
rólegur,
rólegur!
Hvorki Kamilla né ég erum
hrifin af því að flýta okkur!
Við tökum einn dag í einu!
Prófum okkur áfram...
Við erum ekkert að flýta
okkur! Trust me!
Þetta flytja-saman-samtal er
í fjarlægri, fjarlægri framtíð,
félagi!
Jói... Getum við
talað aðeins
saman?
Vissirðu að sumir segja
að maður eigi að tyggja
matinn 50 sinnum áður en
maður kyngir?
Mér finnst
það svolítið
ýkt.
Kannski eru
gúmmíbangsar
undantekn-
ingin.
Ástarguðir ehf.
Rooop!
Afsakið
Ó, já, kæri vinur. Þessa dagana er
kvöldmaturinn ekkert mál.
Þau ráku
mig! Það
eru víst allir
að hittast á
netinu.
Létt og þægilegt
Allt er í dósum.
Reeoop!
Afsakið Roooop!
Fyrirgefðu
Roooooop!
Afsakið
Roooeop!
Afsakaðu þetta
Ef mér verður
boðið í fína
veislu er ég klár
í slaginn!
Við vinur minn vorum
að ræða um ástina og
hvaða merkingu hún
hefði. Vinurinn sagð-
ist þá hafa komist að
þeirri niðurstöðu að
ástin væri samofin
fórninni. Þegar ég
spurði hvað hann meinti
eiginlega tók hann eftir-
talin dæmi.
Ást er... að láta sig hafa það að
vakna við upphafslagið úr Miss
Saigon á hverjum einasta morgni í
heilt ár til þess eins að ganga í
augun á manneskjunni sem maður
elskar heitt, þrátt fyrir að hafa
megnustu óbeit á flestum söng-
leikjum.
Ást er... að bjóða þeim sem maður
elskar á söngvamyndina Chicago í
bíó og sitja skælbrosandi undir
dansandi sirkus í tvo klukkutíma
þrátt fyrir að vera farinn að hata
söngleiki af öllum lífs- og sálar-
kröftum.
Ást er... að bera harm sinn í hljóði
þegar sá sem maður elskar heitt
syngur hástöfum lög úr söngleikj-
um í tíma og ótíma. Lög sem maður
þolir ekki lengur fyrir sitt litla líf
og hefur oft beðið viðkomandi um
að syngja ekki þegar maður er
heima.
Ást er... að pína ofan í sig fullt fat
af slímugum kolkrabbaöngum þrátt
fyrir að vita fátt eins ógeðslegt og
vera að því kominn að æla af við-
bjóði, til þess að móðga ekki
spænskan auðjöfur sem aðilinn
sem maður elskar á í viðskiptum
við.
Ást er... að taka til sama draslið
dag eftir dag eftir manneskjuna
sem maður elskar og minna sig á
við hvern táfýlusokk sem tínist til
ofan í óhreinakörfu að maður ætlar
að verja ævinni með þessari himn-
esku veru. Þótt hún sé oggulítill
draslari.
Ást er... að leysa ekki loft fyrstu
tvö árin í sambúð með þeim sem
maður elskar, nema til að andvarpa
og þá ekki af uppgjöf heldur af
hreinskærri ást. Prumpa svo á bak
við hurð eftir það þótt hinn láti allt
gossa.
Þannig kenndi vinurinn mér að
að ást án sjálfsfórnar er merkingar-
leysa.
STUÐ MILLI STRÍÐA Ást er...sjálfsfórn
ROALD VIÐAR EYVINDSSON LÆRÐI ÝMISLEGT UM ÁSTINA AF VINI SÍNUM
Grand Spa | Grand hótel| Sigtúni 38 | 105 Reykjavík
Sími 578 8200 | www.grandspa.is
Grand Spa er með bestu og glæsi-
legustu heilsulindum landsins og
býður viðskiptavinum sínum upp á
heildræna slökun, snyrtimeðferðir og
líkamsrækt. Þar starfa einstaklingar
sem eru í fremstu röð á sínu sviði og
leggja sig fram við að veita þér
framúrskarandi þjónustu.
Nudd – fullkominn streitubani
La Mer snyrtistofa – einstakar snyrti- og húðmeðferðir
Technogym – nýjustu og bestu líkamsræktartækin
Kinesis æfingakerfi – eykur styrk, jafnvægi og liðleika
Goran Superform – örugg en einföld skref
í átt að líkamlegri vellíðan
Ski fitness – góð líkamsþjálfun sem hjálpar þér
að ráða við brekkurnar í fríinu
Golf fitness – stuðlar að mýkri sveiflu og betri líðan
Dansþjálfun – skemmtileg og ögrandi líkamsrækt
fyrir einstaklinga á öllum aldri
Slökunarrými – gufubað, sauna og nuddpottur,
þar sem þú færð háls- og herðanudd
Vilt þú efla orkuna
og komast í betra form?
Goran Superform
er 4 vikna heilsu-
námskeið sem
tryggir þér fullkom-
inn árangur frá
byrjun. Þú tekur
hröðum framförum
og stígur örugg
skref í átt að líkam-
legri vellíðan.
Námskeiðin byrja 18. febrúar
– kl. 6:30, 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30
Árskorti Grand Spa
fylgir slysatrygging
iðkenda frá Sjóvá.