Fréttablaðið - 14.02.2008, Qupperneq 63
FIMMTUDAGUR 14. febrúar 2008
Sýning á 136 tillögum sem bárust í
hugmyndasamkeppni um skipulag
Vatnsmýrarinnar verður opnuð í
Listasafni Reykjavíkur í Hafnar-
húsinu í dag kl. 17. Fyrr um daginn
verða kynntar á sama stað niður-
stöður úr hugmynda sam keppn inni
og þær sjö tillögur sem þóttu skara
fram úr verðlaunaðar. Í kvöld kl.
20 munu svo uppboðshaldarar
taka Hafnarhúsið yfir og efna til
uppboðs á lóðum í Vatnsmýrinni
þar sem fólki gefst færi á að festa
sér afmarkaða lóð samkvæmt
skipulagi vinningstillögunnar.
Engar kvaðir fylgja þátttöku í
uppboðinu, heldur er um að ræða
hressilegan leik þar sem búast má
við miklu kapphlaupi um bestu
bitana.
Keppnin um skipulag Vatnsmýr-
arinnar hófst í lok mars 2007 og
var þátttaka heimil fagfólki í arki-
tektúr og skipulagi um allan heim.
Mikill áhugi reyndist vera á
keppninni enda óvenjulegt að
kallað sé eftir hugmyndum um
svo stórt svæði nálægt miðbæjar-
kjarna höfuðborgar. Keppendur
höfðu aðgang að umfangsmiklum
gögnum um skipulagsforsendur
svæðisins, ásamt skýrslum um
samráð við borgarbúa og hags-
munaaðila um þá möguleika sem
Vatnsmýrin kynni að bjóða upp á.
Í forsendum var ekki tekin afstaða
til þess hvort flugvöllur væri
áfram á svæðinu heldur kallað
eftir hugmyndum um þróunar-
möguleika. Sýningarstjóri er Guja
Dögg Hauksdóttir deildarstjóri
byggingarlistardeildar Listasafns
Reykjavíkur.
Samhliða sýningunni kemur út
vegleg bók með öllum tillögunum.
Tillögur um Vatnsmýri
VATNSMÝRIN Hvernig er best að skipuleggja þetta svæði?
Auðmýkt er heiti myndlist-
arsýningar Birgis Snæ-
bjarnar Birgissonar sem
opnar í hinu framsækna
Gallery Turpentine á
morgun kl. 18.
Í fréttatilkynningu
frá Gallery Turpentine
er eftirfarandi texti
frá listamanninum
sjálfum: „Þetta eru
verk sem byggja á
nokkrum postulínsstytt-
um sem ég hef fundið og
málað. Ég hef átt far-
sælt samstarf með
Vigfúsi Birgissyni
ljósmyndara og í
sameiningu hefur
okkur tekist að
skapa heim eða andrúm í
kringum þessar styttur.
Andrúm sem á í raun fátt
skylt við ljósmyndir og
er einnig komið ansi
langt frá upprunalega
hlutnum. Það gerist
eitthvað þarna í ferl-
inu. Postulínið fer frá
því að vera kalt og
glansandi yfir í að
verða matt og loft-
kennt þegar það er
málað með olíu-
litunum. Þegar við svo ljósmynd-
um stytturnar verður til eitthvað
allt annað. Útkoman er líkust
stefnumóti mildi og mýktar. Verk-
in eru ný en postulíninu hef ég
verið að safna undanfarin ár og
geri áfram.“
Ekki er langt síðan sýningu
Birgis Snæbjarnar, Ljóshærð ung-
frú heimur 1951-, lauk á Kjarvals-
stöðum, en sýning sú hlaut mikið
lof gagnrýnenda og annarra sýn-
ingargesta. Sýningin í Turpentine
er þó býsna ólík þeirri sýningu;
beitt er annarri tækni við gerð
verkanna en jafnfram einkennist
viðfangsefnið af meiri auðmýkt.
Sýningin stendur í Gallery Turp-
entine til 1. mars.
- vþ
Auðmýkt Birgis í Turpentine
POSTULÍN Eitt af
verkum Birgis Snæ-
bjarnar Birgissonar á
sýningunni í Gallery
Turpentine.
Uppboð 17. febrúar í IÐNÓ við tjörnina.
Allir velkomnir!
Arnason & Andonov ehf., Austurströnd 1, 170 Seltjarnarnes
s.551-05 50, aa-auctions@simnet.is, www.aa-auctions.is
Uppboðshlutir til sýnis fi mmtudag 14 og föstudag 15 frá kl. 10-18,
og laugardag frá kl. 10-16 á Austurströndinni. Einnig á vefnum ásamt
uppboðsskilmálum.
Uppboðsdagskrá:
1 hluti kl 12:00 Frímerki.
2 hluti kl 13:30 Póstkort og mynt.
3 hluti kl 14:30 Póstkortasafn Sigurðar Örlygssonar.
4 hluti kl 17:00 Bækur, málverk og aðrir listmunir.
14. – 21.
FEBRÚAR Í HAFNARHÚSINU
VATNSMÝRI
102 REYKJAVÍK
NIÐURSTÖÐUR ÚR HUGMYNDA-
SAMKEPPNI UM VATNSMÝRI
Dagskrá yfir sýningardagana
14. febrúar – fimmtudagur
kl 20 Viðburður: Opið „uppboð” á lóðum í Vatns-
mýri með hliðsjón af vinningstillögu úr sam-
keppninni. Umsjón Guja Dögg Hauksdóttir
deildarstjóri byggingarlistardeildar og
sýningarstjóri.
15. febrúar – föstudagur
kl 16 Kynning og pallborð: Verðlaunahafar kynna
tillögur sínar og dómnefnd gerir grein fyrir
niðurstöðum sínum og í kjölfarið verða opnar
pallborðsumræður um framtíðarsýn og skipu-
lag borgar í Vatnsmýrinni.
16. febrúar – laugardagur
kl 14 Leiðsögn: Guja Dögg Hauksdóttir deildar-
stjóri byggingarlistardeildar og sýningar-
stjóri annast leiðsögn um sýninguna.
17. febrúar – sunnudagur
kl 14 Leiðsögn: Steve Christer arkitekt og dóm-
nefndarmaður annast leiðsögn um sýninguna.
21. febrúar – fimmtudagur
kl 17 Fyrirlestur: Massimo Santanicchia arkitekt
fjallar um fagurfræði og tíðaranda í
skipulagi borga.