Fréttablaðið - 30.10.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 116%
meiri lestur en Morgunblaðið.
33,47%
72,34%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
30. október 2008 — 297. tölublað — 8. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Hin nítján ára Bryndís Helgadótt-
ir, sem starfar hjá Inega Models í
Mumbai á Indlandi, tók í síðustu
viku þátt í Lakmé-tískuvikunni í
Mumbai þar sem um 75 hönnuðir
sýndu vor- og sumarlínur síÞá fi
Bombai Times enda eftir henni
tekið innan um dökkhærðar
þokkadísir. Bryndís segir þó bæði
kosti og galla við það að skera sigúr.
tæpa þrjá mánuði. „Ég kunni svo
vel við mig að ég ákvað að fara
aftur og mun starfa hjá
Sker sig úr með ljósa hárið
Bryndís Helgadóttir tók í síðustu viku þátt í Lakmé-tískuvikunni í Mumbai. Hún var eina ljóshærða
módelið á staðnum og vakti að vonum athygli. Myndir af henni rötuðu inn á síður Bombai Times.
Hér má sjá Bryndísi í appelsínurauðum kjól eftir indverska hönnuðinn Gayatri Khanna en mynd af henni í sama kjól birtist nýlega
í Bombai Times.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
LÝSI er góð viðbót við fjölbreytta fæðu yfir vetrarmánuðina en í því er D-vítamín
sem er líkamanum nauðsynlegt. Á sumrin er hægt að fá nægilegt D-vítamín með
því að láta sólina skína á andlitið stutta stund daglega en á veturna er sólin ekki
nógu hátt á lofti hér á norðurslóðum til þess að D-vítamín myndist í húðinni.
VEÐRIÐ Í DAG
BRYNDÍS HELGADÓTTIR
Ein með ljósa lokka á
pöllunum í Mumbai
• tíska • heilsa • heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
veljum íslensktFIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008VELJUM ÍSLENSKT
Dýrmætar auðlindir og
óbeislað hugmyndaflug
Sérblaðið Veljum íslenskt
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Tilnefndar í annað sinn
Dórurnar í Dan-
mörku halda
áfram að gera
það gott.
FÓLK 32
Undrabarn á útopnu
Árni Beinteinn slær hvergi slöku
við.
FÓLK 34
JÓGVAN:
Flýr ekki Ísland
Færeyingar hugsa hlýlega til Í slendinga.
FÓLK 42
MENNING Hópur fólks hefur nú
unnið að því um hríð að fá til
landsins
leiðtoga Tíbeta,
Dalai Lama.
Mikil leynd
hefur verið um
þá vinnu en
samkvæmt
heimildum
Fréttablaðsins
er stefnt að því
að haldin verði
mikil samkoma
í sumar í Laugardalshöll þar sem
Dalai Lama mun ávarpa hópinn.
Vegna viðkvæms ástands milli
Kínverja og Tíbeta hefur hópur-
inn verið í sambandi við utanrík-
isráðuneytið. „Hugsanlega myndu
vakna einhverjar spurningar um
prótókól en það myndi þá verða
leyst,“ segir Kristrún Heimisdótt-
ir, aðstoðarmaður Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur.
- jbg / sjá síðu 42
Leiðtogi Tíbeta væntanlegur:
Dalai Lama í
Laugardalshöll
DALAI LAMA
Mikið í húfi
Kvennalandslið Íslands í fótbolta
spilar um sæti í lokakeppni Evr-
ópumótsins árið 2009 í Finnlandi.
TÍMAMÓT 24
3 -1
-1
-2
0
BJARTVIÐRI Í dag verður yfirleitt
hæg breytileg átt. Víðast bjartviðri
en skýjað norðaustan og austan
til framan af degi. Hiti um eða yfir
frostmarki með ströndum en frost
3-8 stig til landsins.
VEÐUR 4
Opið til 21
EFNAHAGSMÁL „Við erum bálreiðir.
Útgerðin í Rússlandi segir alltaf
að peningarnir komi á morgun, en
svo gerist ekki neitt. Við erum
fastir hér og eina dægradvölin er
að eigra um bæinn,“ segir Eduard
Demidovich, þriðji stýrimaður á
togaranum Karachavaro sem gerir
út frá Kaliningrad.
Alls 38 menn úr áhöfn skipsins
og annars rússnesks togara, Kol-
omenskoe, hafa verið strandaglóp-
ar í Hafnarfjarðarhöfn í þrjár
vikur eftir fimm mánaða karfatúr.
Ástæðan er að hluti af launum
mannanna hefur ekki skilað sér til
landsins frá rússnesku útgerðinni
Marytime Star.
Magnús Sigfússon hjá Fish
Products Iceland, sem er umboðs-
aðili skipanna á Íslandi, segir
venju hjá rússneskum útgerðum
að borga hluta launa í erlendum
gjaldeyri. Gjaldeyrisfærslur liggi
hins vegar niðri og því berist ekki
fé til að koma áhöfninni heim. „Í
hvert skipti sem einhver aur kemst
í gegn frá Rússlandi sendum við
holl heim. Nú eru 38 eftir hér af 70
manna áhöfn á skipunum tveimur.
Ég finn til með mönnunum og það
er mjög erfitt að fara um borð á
hverjum degi til að tilkynna þeim
að engir peningar hafi borist.“
Igor Debely, fyrsti stýrimaður á
Karachavaro, ber þó engan kala til
Íslendinga. „Þetta er ekki ykkur
að kenna,“ segir hann að lokum.
- kg
Áhöfn á tveimur rússneskum togurum berast ekki laun frá Rússlandi:
Strandaglópar í Hafnarfjarðarhöfn
GJALDA GJALDEYRISINS Hluti áhafnar rússneska togarans Karachavaro sem hefur dvalið í nær sex mánuði um borð í skipinu,
þar af þrjár vikur í Hafnarfjarðarhöfn. Stýrimennirnir Eduard Demidovich og Igor Debely eru fyrsti og þriðji frá vinstri.
EFNAHAGSMÁL „Ég beitti mér fyrir
því í ágústmánuði að hafnar yrðu
umleitanir um að sameina Glitni og
Landsbankann. Sú hugmynd var
reifuð af manni á mínum vegum
við alla þessa aðila en þeir höfðu
ekki áhuga á því þá. Björgólfur
Thor taldi til dæmis að staða þeirra
væri svo sterk að slíkar hugmynd-
ir væru ekki tímabærar,“ segir
Geir H. Haarde forsætisráðherra.
Sex vikum síðar gengu Lands-
bankamenn á fund Geirs og kynntu
áætlun um hvernig mætti afstýra
kerfisfalli bankanna með þátttöku
ríkisins í bankasameiningu.
„Ég treysti mér ekki til að meta
hvort það hefði komið í veg fyrir
fall bankanna ef farið hefði verið í
sameiningu í ágúst. En þá var Leh-
man-bankinn ekki fallinn og lána-
möguleikar enn opnir. Því held ég
að þeir sem leggja fram einhver
plögg núna verði að líta í eigin
barm, ég segi það bara hreint út.“
Hér vísar Geir til áætlunar sem
Björgólfur Thor Björgólfsson,
Halldór J. Kristjánsson og Sigur-
jón Árnason kynntu honum á fundi
í stjórnarráðinu 29. september og
var fjallað um á forsíðu Frétta-
blaðsins í gær. Þar lögðu þeir til að
Glitnir, Landsbankinn og Straum-
ur yrðu sameinaðir. Til þess þyrfti
ríkið að leggja fram 100 milljarða
til viðbótar við þá níutíu sem áður
hafði verið lofað í yfirtöku Glitnis.
Með því ætti ríkið ráðandi hlut í
sameinuðum banka.
„Það var farið yfir þessa áætlun
á mínum vegum og Seðlabankans.
Eins og sjá má af tölunum í henni
þá var gert ráð fyrir að eigendur
Landsbankans og Straums ættu
tvo þriðju af þessum sameinaða
banka gegn framlagi ríkisins. Við
þetta þurrkuðust eigendur Glitnis
nær út úr myndinni. Þetta var
algerlega óaðgengileg hugmynd.“
Geir bætir við að ef forsvars-
mönnum Landsbankans, með birt-
ingu gagna af fundi þeirra, gangi
það til að gefa til kynna að það hafi
vakað fyrir ríkisstjórn eða Seðla-
banka að bankarnir færu í þrot sé
slíkt ómerkilegur og rangur áburð-
ur.
„Það var allt gert til að afstýra
þroti bankanna. Sannleikurinn er
sá að þeir gátu ekki endurfjár-
magnað sig. Leiðin sem var farin,
að setja neyðarlög og ganga hreint
til verks eftir það, bjargaði því
sem bjargað varð,“ segir Geir. - shá
Geir vildi sameina Glitni
og Landsbankann í ágúst
Forsætisráðherra kom þeim skilaboðum til Landsbankans og Glitnis um miðjan ágúst að skoða samein-
ingu bankanna. Því var hafnað á þeim forsendum að staða þeirra væri sterk og slík ákvörðun ótímabær.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
19 marka sigur
á Belgum
Guðjón Valur
Sigurðsson
skoraði sitt
þúsundasta
landsliðsmark
í auðveldum
sigri í gær.
ÍÞRÓTTIR 38