Fréttablaðið - 30.10.2008, Blaðsíða 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Það er sannarlega ömurlegt að góðærið sé búið. Ég var nefni-
lega búinn að sjá pottþétta leið til
að koma sjálfum mér í hóp 20–30
ríkustu auðkýfinga landsins. Nú
verð ég bara að bíða af mér storm-
inn og koma sterkur inn næst. Ég
er með pottþétt plan.
ÞETTA hefði verið svo frábært.
Ég hefði fengið 300 millur bara
fyrir að byrja í nýju vinnunni. Það
er ekkert víst að neinn hefði vælt
enda allir orðnir svo samdauna
sælunni. Ef einhver hefði vælt
hefði ég bara sagst bera rosalega
ábyrgð og vera að vinna í alþjóð-
legu umhverfi. Svo hefði forsæt-
isráðherrann bakkað mig upp
gegn öfundsjúkum kommadrusl-
um og sagt að hann liggi nú ekki
andvaka þótt menn eins og ég séu
á þokkalegum launum.
Ó heilaga hamingja! Hvar hefði
ég byrjað að veltast um í auði
mínum? Ég hefði tekið allan pakk-
ann. Einkaþota? Bingó. Dýrasta
einbýlishús í Reykjavík hefði ekki
verið nógu gott fyrir mig. Ég hefði
líka keypt það við hliðina og gert
göng á milli. Svo hent öllu út úr
báðum og hrúgað dásamlegasta
og dýrasta draslinu inn. Upp í
sveit, á landi einhvers uppgjafa
bændadurgs, hefði ég byggt mér
sumarhöll með öllu því sem einu
guðdómlegu ofurmenni ber. Ég
hefði kannski ekki náð að koma
þangað nema einu sinni á ári, en
vaktmennirnir hefðu verið á laun-
um allt árið.
ÉG hefði látið gott af mér leiða
með klinkinu. Dælt út risatékkum
í listaplebba og veikt pakk. Dorrit
og Óli hefðu fengið að hanga utan
í mér, og ríkisstjórnin, mærandi
mig sem þann Íslandssóma sem
ég er. Líf mitt hefði verið þúsund
sinnum merkilegra en venjulegs
9-5-stritandi lúða. Ég hefði eigin-
lega þurft að láta græða á mig
aukatyppi til að njóta gæðanna til
fulls.
GRÆÐGI er góð. Græðgin er
eimreiðin sem dregur líf okkar til
bjartrar framtíðar. Sjáið þið ekki,
öfundsjúka hyski, að brauðmol-
arnir sem fallið hefðu af gnægta-
borði mínu hefðu verið næg
ástæða fyrir yfirburðunum?
NÚ er dimmt yfir að líta. Nýir
bankastjórar fá smánarleg laun
og láta jafnvel beygja sig til að
lækka þau. Riddarar frjálshyggj-
unnar fara lúpulegir með veggj-
um. Skríllinn er reiður og heimtar
breytingar. Bara einhverjar
breytingar. Hvað er að þessu liði?
Fékk það ekki flatskjá út á yfir-
dráttarlánið?
Ég, auðkýfingur
Komdu með allt í Gull
Lifðu núna
Þú færð Ofurheimasímann. Allt innifalið, símtöl í alla aðra síma,
óháð kerfi – líka í GSM og til útlanda fyrir 3.490 kr. *
Þú færð lægsta mínútuverð í GSM, óháð kerfi
Þú færð mesta hraðann á Netinu
Þú færð okkar bestu kjör og sparnað sem er gulls ígildi
Vertu með allt á einum stað og skráðu þig strax í nýja vildarþjónustu í
1414 eða á vodafone.is.
Vodafone Gull – það besta sem við bjóðum
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
* Innifalið er allt að 6.000 kr. í GSM og 6.000 kr. til 30 helstu viðskiptalanda Íslands. Símtöl í 118 og 900 númer eru gjaldfærð.
Í dag er fimmtudagurinn
30. október, 304. dagur ársins.
9.05 13.11 17.16
9.00 13.56 16.51