Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.10.2008, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 30.10.2008, Qupperneq 2
2 30. október 2008 FIMMTUDAGUR Rannver, halda ykkur engin bönd? „Nei, það er engum blöðum um það að fletta.“ Bókbandsstofa Landsbókasafns Íslands fagnar aldarafmæli um þessar mundir. Rannver Hannesson er fagstjóri á bók- bandsstofunni. OLÍS ÁLFHEIMUM, OLÍS GULLINBRÚ, HOLTAGÖRÐUM, OLÍS MJÓDD, OLÍS NORÐLINGAHOLTI, NÝBÝLAVEGI, SUÐURLANDSBRAUT, OLÍS AKRANESI, OLÍS AKUREYRI, OLÍS BORGARNESI, OLÍS KEFLAVÍK, OLÍS REYÐARFIRÐI 12 STAÐIR STJÓRNMÁL „Það er mér óskiljan- legt að sjá íslenskt fyrirtæki á lista með al-Kaída og talibönum á heimasíðu [breska] fjármálaráðu- neytisins. Við í ríkisstjórninni höfum átt erfitt með að skilja hvernig þetta gat orðið, án nokk- urra viðræðna,“ er meðal þess sem kom fram í ávarpi Ingibjarg- ar Sólrúnar Gísladóttur utanrík- isráðherra sem flutt var í Bret- landi í síðustu viku. Ávarpið var flutt af Sverri Hauki Gunnlaugssyni, sendiherra Íslands í Bretlandi, á hádegis- verðarfundi sem hann efndi til með breskum þingmönnum og fulltrúum úr lávarðadeild. Fundargestir fengu útprent- að eintak af ávarpinu og virðist það þaðan hafa farið í frekari dreifingu. Breska dag- blaðið Indepen- dent birti í gær brot úr ávarp- inu og kallar það óvenju harðorða gagnrýni annarrar rík- isstjórnar á bresk stjórnvöld. Alls sátu þrettán gestir fundinn, sem taldir eru til Íslandsvina. Þar á meðal var Austin Mitchell, þing- maður Verkamannaflokksins, sem hefur gagnrýnt bresku ríkis- stjórnina fyrir framkomu sína gagnvart Íslendingum, og Charl- es Clark, sem er fyrrverandi inn- anríkisráðherra Breta. Sverrir Haukur segir að sjón- armið íslenskra stjórnvalda, hvað varðar stöðu mála í samskiptum Íslands og Bretlands, hafi verið skýrð. Þá hafi þingmenn borið fram margvíslegar fyrirspurnir á fundinum og lýst viðhorfum sínum um hvernig unnt væri að koma málum í jákvæðan farveg til að efla samskipti ríkjanna. - ss Ávarp Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem flutt var í London: Erfitt að skilja ákvörðun Breta EFNAHAGSMÁL „Þeir voru auðvitað að fara nýjar leiðir til að fjár- magna bankann, en í þessari leið var fólgin gríðarleg áhætta fyrir Ísland, sem má deila um hvort þeir hafi haft leyfi til að taka,“ segir Geir H. Haarde forsætis- ráðherra um Icesave-reikninga Landsbankans. Samt hafi stofnun Icesave- reikninga í útibúum erlendis verið innan formlegra reglna, og „að því er virðist, íslenskum lögum,“ segir Geir. Hann segir að úr þessu máli hafi orðið ein erfið- asta milliríkjadeila sem Íslend- ingar hafi lent í. „Forystumennirnir í bankanum bera auðvitað ábyrgð á því að þetta fór af stað. Menn geta ekki vikið sér undan þeirri ábyrgð í sjálfu sér,“ segir Geir. Hann seg- ist þó ekki vilja fara hörðum orðum um þá. Þeir eru væntan- lega Landsbankamenn, einkum fyrrverandi aðaleigendur bank- ans, Björgólfsfeðgar. Viðhorf háttsettra í stjórnar- ráðinu er, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, að nú reyni feðg- arnir að „klína ábyrgðinni“ yfir á aðra. Geir segir að reynt hafi verið að koma reikningunum í skjól, sem þýðir að breskar innstæðu- tryggingar hefðu ábyrgst þá. Hugsanlega hafi sú vinna hafist of seint. Ekki er enn útilokað að inn- stæður á Icesave-reikningum lendi á íslenskum skattgreiðend- um, en rætt hefur verið um 600 milljarða króna í þessu samhengi. Það nemur um það bil lágmarkstryggingu á hverjum Icesave-reikningi í Bretlandi, sem er 20.887 evrur. Það er byggt á lögum um Tryggingasjóð sem aftur eru byggð á tilskipun Evr- ópusambandsins. Geir segir að nú sé komið á dag- inn að sú tilskipun sé gölluð. „Það verður auðvitað reynt að sjá til þess að við sitjum ekki hérna með einhverjar drápsklyfj- ar marga áratugi fram í tímann og markmiðið er að reyna að tryggja það að eignir bankans geti staðið undir þessari skuld bankans,“ segir Geir. Geir segist ekki hafa upplýs- ingar um virði þessara eigna. Fréttablaðið hefur árangurs- laust um nokkurt skeið reynt að fá upplýsingar um virði eignanna. Landsbankamenn segja óvíst um virðið. Óskað var upplýsinga frá Fjármálaeftirlitinu á grundvelli upplýsingalaga. Svar barst í gær og vill eftirlitið ekki gefa upplýs- ingarnar. ingimar@frettabladid.is Icesave var gríðarleg áhætta fyrir Ísland Forsætisráðherra segir umdeilanlegt hvort Landsbankinn hefði mátt stofna til innlána í útibúum erlendis, vegna áhættu. Enn er ekki útilokað að innstæður lendi á Íslendingum. Björgólfsfeðgar reyna að „klína ábyrgðinni“ annað. FUNDAÐ Í RÁÐHERRABÚSTAÐ Geir H. Haarde forsætisráðherra hitti blaðamenn á fundi í gær. Forsætisráðherra sagði að reynt hefði verið að koma reikningum Icesave í skjól en hugsanlega hefði sú vinna hafist of seint. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA INGIBJÖRG SÓL- RÚN GÍSLADÓTTIR VIÐSKIPTI Alls er áætlað að níutíu prósent starfsmanna Kaupþings hafi verið hluthafar í bankanum er hann komst í þrot. Hlutabréf þeirra eru nú verðlaus. Sex til sjö hundruð þessara starfsmanna höfðu tekið lán vegna hlutabréfa- kaupanna í samræmi við stefnu bankans um valréttarsamninga. Nemur upphæð þeirra lána nú á fimmta tug milljarða, þar af er stór hluti vegna valrétta nokkurra tuga æðstu stjórnenda bankans. Samkvæmt heimildum Markað- arins vilja starfsmenn gamla Kaupþings nú semja um sín mál við stjórn Nýja Kaupþings, enda hafi verið litið svo á að valréttirnir væru hluti af kjörum starfsfólks og verið meðhöndlaðir sem slíkir af skattayfirvöldum. - bih / sjá síðu 18 Starfsmenn gamla Kaupþings Tugmilljarða hlutabréfalán VIÐSKIPTI Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráð- herra, hefur sent forsvarsmönn- um ríkisbankanna þriggja bréf til að minna þá á jafnréttislög. Þar er sú skylda atvinnurekenda að jafna stöðu karla og kvenna ítrekuð. „Það er því grundvallarat- riði að fjármála- fyrirtæki í 100 prósent eigu hins opinbera fari að ákvæðum laganna um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og þýðingar- mikið að nýju bankarnir gegni ákveðnu forystuhlutverki að þessu leyti á íslenskum fjármála- markaði. Á þetta ekki síst við um skipan í stjórnir bankanna sem og stjórnunarstöður innan þeirra,“ segir í bréfinu. - kóp Félagsmálaráðherra: Minnir banka á jafnréttislög SKÁK Indverski skákmaðurinn Viswanathan Anand varði í gær heimsmeistaratitilinn í skák þegar hann gerði jafntefli við Rússann Vladimir Kramnik í Bonn í Þýskalandi. Skák þeirra var sú ellefta og hafði Anand hvítt í skákinni. Þeir Kramnik sömdu um jafntefli eftir 24 leiki. Anand sigraði með sex og hálfum vinningi og þurfa þeir Kramnik því ekki að tefla tólftu og síðustu skákina. Verðlaunaféð, ein og hálf milljón evra, skiptist jafnt á milli skákmannanna tveggja. - ovd Jafntefli í elleftu skákinni: Anand varði heimsmeistara- titilinn FRÁ SKÁKEINVÍGINU Vladimir Kramnik og Viswanathan Anand, heimsmeistari í skák, við upphaf skákeinvígisins í Þýska- landi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP PAKISTAN, AP Nærri tvö hundruð manns létust þegar öflugur jarðskjálfti varð í suðvesturhluta Pakistans í gær. Hundruð manna slösuðust og talið er að um fimmtán þúsund manns hafi misst heimili sitt. Jarðskjálftinn varð í afskekktum dal í héraðinu Balúkistan, skammt frá landamærum Afganistans. Skjálftinn mældist 6,4 stig, en síðar um daginn varð annar skjálfti sem mældist 6,2 stig. Fjöldi smærri eftirskjálfta kom í kjölfar stóru skjálftanna. Einna verst úti varð bærinn Ziarat og átta önnur nærliggjandi þorp, þar sem hundruð húsa eyðilögðust. Húsin eru ýmist gerð úr timbri eða leir og múrstein- um. „Eyðileggingin er gríðarleg,“ segir Dilawar Kakar, bæjarstjóri í Ziarat. „Ekki eitt einasta hús stendur uppi óskemmt.“ Hann hvatti fólk „um heim allan“ til þess að veita heimafólki þarna aðstoð. Stjórnvöld í Pakistan sögðust reyndar ekki telja þörf á erlendri aðstoð, en fulltrúar frá Alþjóða-Rauða krossinum og Rauða hálfmánanum í Pakistan voru sendir á vettvang til að meta ástandið og veita aðstoð. Vetur er að ganga í garð á þessum slóðum, en flestir þeir sem misstu hús sitt hafast nú við undir berum himni. Jarðskjálftar eru algengir í Pakistan. Fyrir þremur árum varð þar gríðarmikill jarðskjálfti sem mældist 7,5 stig og kostaði 80 þúsund manns lífið. - gb Öflugur jarðskjálfti í Pakistan varð nærri 200 manns að bana: Fimmtán þúsund heimilislaus JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR ÆTTINGJAR BERA KENNSL Á LÍKIN Nærri tvö hundruð manns létu lífið þegar jarðskjálftinn mikli varð í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐSKIPTI Seðlabanki Bandaríkj- anna lækkaði stýrivexti sína um hálft prósent í gær í viðleitni sinni til að efla viðskipti í landinu. Stýrivextir bankans nema nú einu prósenti og jafnar bankinn þar með lægsta vaxtastig stýrivaxtanna frá upphafi en síðast voru stýrivextirnir svo lágir frá júní 2003 til júní 2004. - ovd Fjögurra ára met jafnað: Vextir lækkaðir vestanhafs DÓMSMÁL Tæplega fimmtugur karlmaður hefur verið dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir ýmis brot. Meðal annars að ráðast á starfs- mann Vínbúðar ÁTVR í Kópavogi, taka hann hálstaki og kýla hann. Starfsmaðurinn hafði verið að kanna hvort maðurinn hefði stolið áfengisflösku. Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa fimm sinnum verið tekinn undir stýri, ökuréttindalaus. Þá var hann einu sinni tekinn fyrir akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna og enn fremur gripinn með lítilræði fíkniefna í fórum sínum. Hann á sakaferil að baki. - jss Hálfs árs fangelsi: Réðst á starfs- mann í vínbúð SPURNING DAGSINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.