Réttur


Réttur - 01.01.1952, Blaðsíða 33

Réttur - 01.01.1952, Blaðsíða 33
RÉTTUR 33 kvæðinu um „Eugene Debs“. Fangelsanir og morð, með og án dóma, eru orðin daglegt fyrirbrigði. Og nú er það ekki alþýða Ameríku ein, sem verður fyrir barðinu á því. Nú teygir auð- vald Morgans og Rockefellers klær sinar út til allra þeirra landa, sem það vogar að níðast á, án þess að eiga á hættu að vera rekið öfugt út aftur. Sá Fáfnir amerísks auðs, sem sölsað hefur undir sig mestallt gull veraldar, hyggst nú og að fá að sjúga merg og blóð úr öllu fólki heimsins — og hótar því tortímingu styrjaldar, ef það ekki beygi sig og hlýði. Og nú víkur sögunni heim. Nú er það ekki brot úr íslenzku bændaþjóðfélagi, sem flytur sig vestur um haf, rekst á auðvald Ameríku og fyllist heilagri vandlætingu, eldmóði og baráttuhug. Nú er það ameríska auðvaldið, margfalt ógnþrungnara, spillt- ara og blóðugra en það var 1890, sem flytur sig til gamla Fróns og læsir krumlu sinni um allt þjóðlíf þess. Amerískt auðvald ræður með skilyrðum þeim, sem það hefur sett með Marshall„aðstoð“ og mótvirðissjóð yfir hagnýtingu alls lánsfjár á íslandi, fyrirskipar ríkisstjórn og seðlabanka hvernig haga skuli seðlaútgáfu og útlánum. Þetta vald yfir lánsfénu notar hið ameríska auðvald til þess að féfletta þorra íslenzku þjóðarinnar: gera verkamenn atvinnulausa með því að neita atvinnufyrirtækjum um nauðsynlegt lánsfé, gera handverks- menn, kaupmenn og aðrar millistéttir gjaldþrota sökum kaup- getuminnkunar hjá almenningi og lánsfjárskorts, drepa mikinn hluta íslenzks iðnaðar með lánsfjárbanni og innflutningspólitík, erlendri stóriðju í hag. Amerískt auðvald hefur knúð fram gengislækkun íslenzkrar krónu, minnkað kaupmátt flestra íslenzkra verkamanna um helming frá því 1947 til 1951, rænt þannig helming þeirrar lífs- afkomu, er íslenzkur verkalýður hafði aflað sér, lagt þungar byrðar á herðar íslenzkum bændum með svo stórhækkuðu verði á landbúnaðartækjum, að stöðvun framfara í landbúnaðinum vofir nú yfir þessvegna. Amerískt auðvald læsir gegnum sjálfar stofnanir íslenzka lýðveldisins: stjórnarráð, fjárhagsráð og aðrar, einokunarklóm sínum um atvinnu- og viðskiptalíf landsins, hindrar eftir mætti verzlun þjóðarinnar við stærstu og öruggustu markaðslönd henn- ar, bannar íslendingum sjálfum svo mikið sem að byggja yfir sig án þess að spyrja stjórnarnefnd undir amerísku sftirliti leyfis 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.