Réttur - 01.01.1952, Blaðsíða 119
RÉTTUR
119
hlutlausan dómstól. Hæstiréttur hækkaði sektina og vítti
undirrétt fyrir að láta bóka yfirlýsingu Einars. Vegna
þeirra ,,glapa“ réttarins að láta bóka ummælin, er Einar
dæmdur í 1500 kr. sekt! Þeir láta ekki rökfræðina trufla
sig þessir herrar. Auk þess, sem dómurinn lýsir ágætlega
afstöðu þeirra til frumstæðustu mannréttinda. Eftirleiðis
skal það vera saknæmt að bóka ummæli vitna fyrir rétti,
ef þeim þykir máli skipta að gera grein fyrir afstöðu sinni
til réttarins!
16. maí var haldinn almennur mótmælafundur gegn
dómunum í stærsta samkomuhúsi Reykjavíkur og sóttu
hann fleiri en húsið gat rúmað. Voru þar samankomnir
um 1000 manns. Fundurinn samþykkti eftirfarandi álykt-
anir í einu hljóði:
„Almennur fundur, haldinn í Austurbæjarbíói 16.
maí 1952, lýsir sárum harmi og réttlátri reiði sinni
yfir því, að Hæstiréttur landsins skuli hafa niðurlægt
sig til að gerast tæki í hendi valdhafa landsins til
ofsókna gegn þeim mönnum, er verjast óréttmætum
árásum og berjast fyrir frelsi og friðhelgi landsins.
Fundurinn lýsir megnustu andúð sinni á dómum þeim,
sem Hæstiréttur hefur kveðið upp í 30. marz málun-
um, þar sem ótvírætt var frá siðferðilegu og póli-
tísku sjónarmiði, að sýkna bar hina ákærðu af ákær-
um dómsmálaráðherra, en frá lögfræðilegu sjónar-
miði bar að vísa þeim frá til fullnaðarrannsóknar, þar
sem rannsókn sakadómara í málinu var hlutdræg
og framkvæmd í þeim tilgangi að hlífa þeim seku:
valdamönnum landsins og lögreglustjóra þeirra.“
„Almennur fundur, haldinn í Austurbæjarbíói 16.
maí 1952, skorar á allan almenning að berjast fyrir
fullri sakaruppgjöf og endurheimt mannréttinda allra
þeirra, er dæmdir voru af Hæstarétti í 30. marz mál-
unum, og heitir fylgi sínu við hver þau samtök, sem
skipuleggja þessa baráttu.