Réttur


Réttur - 01.01.1952, Side 48

Réttur - 01.01.1952, Side 48
48 RÉTTUR stéttir landsins eru trygging og skilyrði sigursins. Bændastétt ís- lands sá það bezt með „sex-manna-nefndar“ samkomulagi Sós- íalistaflokksins og Framsóknar frá 1942, hvert afkomuöryggi verkalýðurinn getur veitt bændum. En þá eiga bændur ekki að láta hafa sig til þess að eyðileggja grundvöll þess öryggis: atvinnu- öryggið og þarmeð kaupgetu verkalýðsins, — eins og bændur glæptust á að gera það með því að fylgja þeim Framsóknar- og íhaldsforsprökkum, sem nú leiða atvinnuleysið og neyðina í sjávar- þorpin og Reykjavík. En þaðan berst hvorutveggja síðan til sveita. Sjómenn og útvegsmenn íslands fundu það með fiskábyrgðinni hvernig skapa mátti öryggi um fiskverð og atvinnu þeirra, ef traust samstarf var milli þessara stétta og auðmenn Reykjavíkur fengu ekki tækifæri til að sundra þeim og blekkja fiskimenn til fylgis við íhaldið gegn alþýðunni. Þeir atvinnurekendur, sem amerískt auðvald vill feiga, — eins og iðnrekendur, þeir atvinnurekendur, sem það arðrænir vægðarlaust, eins og útvegsmenn, eða stöðvar við starf sitt, — eins og byggingar- og iðnmeistara, — hafa séð það af reynslunni að verkalýðurinn, sameinaður í Sósíalistaflokknum, hefur varað þá við hættunum, barizt gegn fjendum þeirra og sífellt verið viðbúinn til viðnáms og varnar sameiginlegum hagsmunum þeirra og til sóknar fram til nýrra og stórvirkari framleiðsluhátta báðum aðilum til hags. Þessir aðilar þurfa að læra af þeirri reynslu. Hvert stórt spor, sem stigið er til eflingar sjálfstæðu íslenzku atvinnulífi, til víð- tækari og frjálsari verslunar íslendinga, — hver fjötur erlendra auðhringa á framleiðslu og verzlun íslands, sem höggvinn er — er sigur þjóðarinnar í frelsisbaráttu hennar. Það berjast því margir baráttunni gegn ameríska auðvaldinu, sem enn gera sér ekki ljóst, að þeir eru að heyja hana. Menn trúa því ekki enn að þetta vald sé að reyna að fjötra allar íslenzkar framfarir og sölsa undir sig beztu auðlindir íslands. En gegn því rís öll lífs- og athafnaþrá þjóðar vorrar. En lokasigurinn í þessari baráttu vinnst þá fyrst, er þjóðin hefur gert sér ljóst og samfylkt vitandi vits í baráttunni gegn þessum bölvaldi fyrir lífi sínu og frelsi. Pólitískt hámark þess viðnáms og þessarar sóknar, sem þjóð vor heyr gegn amerísku auðvaldi er baráttan um að ná ríkisvald- inu úr höndum þeirra amerísku leppa, sem nú beita því til kúg- unar þjóðinni. Tækið til að vinna þann sigur er sú þjóðfylk- ing íslendinga, sem Sósíalistaflokkurinn á 8. flokksþingi sínu eggjaði þjóðina á að mynda. (Sjá Rétt síðasta hefti, Víðsjána). Þar vísar Sósíalistaflokkurinn þjóðinni leiðina til þess að höggva af henni einokunarfjötrana, afnema lánsfjárbannið, koma fram-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.