Réttur


Réttur - 01.01.1952, Page 93

Réttur - 01.01.1952, Page 93
RÉTTUR 93 Ein helzta vörnin, sem beitt er fyrir þessar aðgerðir allar er sú, að svo mjög höfum við þurft á þessu fé að halda, að án þess hefðum við ekki komið áfram vissum mannvirkjum s. s. Sogs- og Laxárvirkjununum og enn fremur að ef við hefðum ekki fengið svo mikinn neyzluvöruinnflutning fyrir Marshallfé, þá hefði hér blátt áfram ríkt neyðarástand hvað lífsnauðsynjar snerti. Þessum blekkingum er í raun og veru fullsvarað með því, sem sagt er hér að framan. Með þeirri tækni sem við áttum í atvinnu- lífinu og þeim mörkuðum, sem við höfðum aflað okkur var í lófa lagið að framleiða andvirði þessara 445 millj. auk þess sem við höfum framleitt, og raunverulega meira. Það má í því sam- bandi t. d. nefna togarastöðvunina sumarið 1950, sem kostaði þjóð- ina á annað hundrað millj. kr. í gjaldevristekjum. Ef Alþingi hefði fengizt til að leysa það deilumál, 12 stunda hvíldina, eins og nú nýlega var gert, og Sósíalistaflokkurinn hafði barizt fyrir, þá hefði þjóðin aldrei þurft að tapa þeim tekjum. Margt fleira mætti nefna sem sannar það hve framleiðsumögu- leikar okkar eru nægir til að afla þess sem þjóðin þarf. Það er því sjálfskaparvíti, eingöngu á ábyrgð þeirra ríkisstjórna og flokka, sem þessu hafa stjórnað að svona er komið enda er nú skilningur almennings vaxandi á því atriði. Þá hefur ekki verið slegið slöku við það atriði Marshalláróðurs- ins að hér sé eingöngu um góðgerðastarfsemi að ræða. Mikill er máttur hins ósvífna áróðurs, þegar jafnvel er hægt að telja stórum hluta heilla þjóða trú um, að utanríkisstefna heils stór- veldis, og það meira að segja voldugasta auðveldis jarðarinnar sé fyrst og fremst gustukafyrirtæki. Það er einmitt að koma bezt í íjós nú í sambandi við hina vaxandi kreppu í auðvaldsheiminum að Marshallkerfið allt er fyrst og fremst hugsað sem tryggingar- stofnun fyrir bandaríska auðvaldið. Sósíalistaflokkurinn sagði þetta fyrir strax, en íslenzkir borgarar vildu ekki trúa því. Málið er þó auðskilið þegar það er skoðað frá rótum. Bandaríkin voru hin eina af stríðsþjóðunum, sem ekki fékk víg- völl í eigin landi. Þau gátu því alla tíð einbeitt allri framleiðslu- orkunni í að auka framleiðsluna til að fylla hinn óþrjótandi mark- að, sem stríðið skapaði í öðrum álfum heims. Þegar stríðinu lauk hafði fraínleiðslugeta þeirra aukizt stórkostlega á stríðsárunum, og byggðist sú framleiðsluaukning eingöngu á hinum stórkostlega útflutningi þeirra ára. Um þetta sagði Cardcliffe prófessor í hag- fræði við háskólann í Kaliforníu m. a. þetta: „Iðnaður Bandaríkjanna er miðaður við heimsmarkaðinn. Hið sama gildir um landbúnaðinn og reyndar í enn ríkara mæli . . .
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.