Réttur


Réttur - 01.06.1952, Page 4

Réttur - 01.06.1952, Page 4
132 RÉTTUR Og bvar sem þínum óskabörnum er með ógn í myrkvað hlekkjadíki steypt, við þeirra fórn er fjöregg þjóðar keypt og frelsisþytur yfir löndin fer. Dýflissa þín, svo heljarköld og hljóð, er helgur staður, gamla Chillon-höll! í hellugólfið glöggt má kenna slóð, sem gengið hefði bam um bjarta mjöll. Bonnivard þessi spor I steininn tróð! Frá valdsins grimmd til guðs þau liggja öll. Calais, 1 802 eftir W. Wordsworth Mundi það vera vindi skekið strá, sem virðulegir heldri pótentátar, valdsmenn og lítils virtir undirsátar og vesalingar flykkjast til að sjá! Sú hjörð er fús að daðra við og dá þann digurbarka, sem af völdum státar í öðru landi, færir fórn og játar hve falt er hennar lið og hyggjan grá. Að virða göfugt vald er þjóðardygð sem verður hvorki gróðursett í skyndi né vökvun fær í skjótum skúravindi ef frelsi og sannleiksást er yfirskyggð af undirlægju-kennd og smjaðurlyndi. Já, skammizt ykkar, skriðdýr full af lygð!

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.