Réttur


Réttur - 01.06.1952, Blaðsíða 24

Réttur - 01.06.1952, Blaðsíða 24
152 rÉTTUB, endum aðeins 1,3% börn fátækra bænda og 3,8% börn iðnaðar- verkamanna, enda þótt þetta væru fjölmennustu stéttir landsins. í sérskólum og háskólum nam tala nemenda úr þessum sömu stétt- um 1—2% af nemendafjölda skólanna. Á þessu varð nú gagngerð breyting. Jafnframt því sem gert var við þau skólahús, sem skemmzt höfðu í stríðinu og ný byggð til viðbótar, voru skólarnir nú opnaðir fyir alþýðuæskunni. Á síðasta ári áætlunarinnar, skólaárinu 1949—’50, voru þau umskipti orðin, að í miðskólunum voru 45,8% úr verkalýðs- og smábændastétt, en í æðri skólum 60%. Þjóðartekjurnar jukust á tímabili þriggja-ára-áætlunarinnar um 97%. Til samanburðar má geta þess, að á tímabilinu 1926—’37 jukust þær einungis um 28% samanlagt á öllu tímabilinu. 1938 fengu 0,6% af þjóðinni 20% af þjóðartekjunum, og 19,6% af þjóð- inni, er næst gengu að tekjum, fengu 38%. Þessu misrétti var nú kippt í lag. Einnig varð veruleg breyting á hlutfallinu milli að- alatvinnuveganna. 1938 komu 35,3% af þjóðartekjunum frá iðn- aðinum, en 1949 49,2%. í lok áætlunarinnar hafði mestallur iðnað- urinn verið þjóðnýttur, sömuleiðis allir bankar og utanríkisverzlun. Ný stjómarskrá Ungverska þjóðin hafði nú sannfærzt um, að sú endurbyggingar- og nýsköpunarstefna, sem Kommúnistaflokkurinn og síðar Flokk- ur ungverskrar alþýðu höfðu haft forgöngu um, leiddi raunveru- lega til ört batnandi lífskjara og félagslegs réttlætis, að vígorðið, sem Flokkur ungverskrar alþýðu hafði gefið hinu vinnandi fólki: „Landið er þitt og þú byggir það upp í þína eigin þágu“, var ekki innantómt slagorð, heldur í fullu samræmi við þann nýja félags- lega veruleika, að alþýðan, sem fram að þessu hafði verið réttlaus útlagi í sínu eigin landi, hafði nú raunverulega eignazt það og var frjáls að því að yrkja það og njóta hinna ríkulegu gæða þess. Fjölmennir þjóðfélagshópar, sem fram að þessu höfðu verið tví- ráðir og hikandi, tóku nú að líta á áætlunarbúskapinn sem hina ákjósanlegustu leið og skipa sér undir merki þeirrar stefnu, er Flokkur ungverskrar alþýðu markaði. Á stjórnmálasviðinu birtist þessi vaxandi þjóðareining í því, að ýmsir milliflokkar, sem hing- að til höfðu látið afskiptalausa baráttuna fyrir framkvæmd áætl- unarinnar eða verið fjandsamlegir, létu nú í ljós ósk um að gerast aðilar að uppbyggingarstarfinu. 1949 var svo myndað bandalag allra þeirra flokka, sem lýstu sig samþykka áætlunarbúskap og uppbyggingu sósíalisma í landinu. Þetta bandalag var nefnt Sj álfstæðis-þjóðfylkingin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.