Réttur


Réttur - 01.06.1952, Page 56

Réttur - 01.06.1952, Page 56
184 RÉTTUR allir hétu að koma til Þórsnessþings um vorið og sverja konung- inum þar land og þegna“. Síðan segir hann, að „Hrafn Oddsson kom eigi til Þórsnessþings, og því fór Hallvarður eigi þangað“. Hvað er Sturla að segja með þessu öllu saman? Enginn efast um það, að hann segi það eitt, sem sannleikanum er samkvæmt. En við skulum ekki líta á Sturlu sem sagnaritara, er riti sögu aðeins sagnaritunarinnar vegna. Hann er líka þjálfaður stjórn- málamaður í löngum skóla lífsins og metur, hvað rétt er að segja og hvað ósagt láta. Og nú skulum við líta til þess, að hann er utan kominn vegna kæru um sakir við konung, og hann ritar sögu Hákonar konungs í nokkurs konar friðþægingarskini við Magnús konung son hans. í Hákonarsögu segir hann ekki eins greinilega frá nokkrum atburði, er gerist á íslandi, og þessum. Ekki fer hann að segja frá afskiptum sínum af þessum málum til þess eins að ljósta upp andstöðu sinni gegn konungsvilja, nógu erfið mundi aðstaða hans sanit hafa verið gegn náð konungsins. Er hann að segja frá þessu til að þvo af sér gefna sök? Hann segir, að Hallvarður hafi tilkynnt á þingi, „að flokkar voru sam- an dregnir fyrir vestan heiðar og höfðu allir heitið að ganga undir skatt og konungs mál og ætluðu að ríða til þings og flytja þar konungs mál, ef ekki gengi ella við“. Er Sturla að láta skína í það, að hann hafi beðið með sveit sína undir Bláskógaheiði, reiðu- búinn til bjargar máli konungsins, „ef ekki gengi ella við?“ Svo mætti virðast. Ekki er ástæða til að efa, að rétt sé skýrt frá. Hver sem hún var ástæðan til þess, að Vestfirðingarnir fóru ekki á alþing með sína sex hundruð manna sveit, þá mundu þeir aldrei hafa gefið Hallvarði aðra skýringu en þá, að þeir vildu sverja eiða sína vestan heiða, en vitja mætti þeirra til liðsinnis, ef á þyrfti að halda. Og hversu girnilegt sem þetta mátti vera til framreiðslu 1 konungsgarði, þá er eftir að athuga, hvernig hægt var að skilja það, að þeir Vestfirðingarnir lögðu að Oddaverjum og syst- ursonum Þórðar kakala að sækja þingið fjölmennir og lýst er heiti Þorvarðar að koma með Austfirðingum. Vildi hann með því gefa til kynna, að þeir Vestfirðingarnir hefðu viljað fá aðstoð Oddaverja og Austfirðinga til að knýja fram konungsvilja, ef Árnesingar reyndust erfiðir? Það er mjög ólíklega til getið. Ef þeim átti að vera svo kappsmál að koma konungs vilja fram, hví komu þeir sjálfir þá ekki sem fyrst á vettvang? Haustið 1260 höfðu hirðmenn konungs borið honum þær fréttir, að meðal þeirra, sem mest mæltu í móti skattinum, voru „þeir, sem komnir voru austan um Þjórsá“. Og Þorvarður Þórarinsson var sá íslenzkra höfðingja, er síðastur allra sór konungi skatt og þegna. Ekki er

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.