Réttur


Réttur - 01.11.1962, Page 7

Réttur - 01.11.1962, Page 7
U É T T U h 279 Standist hún í þeim átökum og láti ekki auðvaldið knésetja sig eða kúga né granda sál sinni eða sannfæringu, þá bíður íslenzkrar þjóðar ný gullöld bókmennta og lista í því þjóðfélagi, þar sem fátækt og þrældómi er að fullu útrýmt og enginn mun lengur „krjúpa við gull eða völd“. En verði íslenzk alþýða undir í þessum átökum og bregðist is- lenzkir menntamenn köllun sinni, þá er framtíð þjóðar vorrar í voða. III. Hví er hér lögð svo brýn áherzla á úrslitagildi þeirra átaka, er nú standa yfir milli vinnandi stétta og auðvalds á íslandi um kaup og kjör, um inngöngu í Efnahagsbandalag og önnur höfuðdeilumál vorra daga? Auðvaldsskipulagið er i andarslitrunum sögulega séð. Það getur aðeins tórað eina til tvær kynslóðir enn, ef brjálæðingar þess ekki hleypa heiminum í bál. Deyjandi þjóðfélög hafa áður dregið með sér heilar þjóðir í djúp sögunnar, svo þeirra sér ekki stað framar nema í frásögnum síðari alda. Aðrar hafa orðið að umskiptingum fyrir hatröm áhrif aflurhalds- eða kúgunarafla og aldrei borið sitt harr framar. Innganga íslands í Ejnahagsbandalagið, sem afturhaldssamari hluti auðvaldsins stejnir nú að, getur eigi aðeins hajt í jör með sér innflutning erlends auðmagns, er nœði tökum á íslenzku atvinnulífi, — innflutning erlends vinnufólks í tuga eða hundruð þúsunda tali, — eignaryjirráð erlendra manna yjir þorra jarðanna á íslandi, — hagnýtingu íslenzkrar landhelgi aj hálju erlendra útgerðarfélaga. Innlimun íslands í auðhringaríki Vestur-Evrópu, getur þýtt útrým- ingu íslenzkrar þjóðar. Fyrst yrðum við minnihluti í landi voru, síðan sýktist þjóðin meir og meir aj þeim hatrama óþjóðlega auð- valdsgaldri, sem þegar er byrjaður að trylla hluta hennar. í 30 ár var hlutleysi íslands hið sjálfsagða skilyrði sjálfstæðisins í augum allrar þjóðarinnar. Nú er auðvaldsáróðurinn að gera lilut- leysið að glæp, — kommúnistisku samsæri, — í augum hálfrar þjóð- arinnar. Öldum saman var sjálfstæði landsins hugsjón, sem kúgaðar kyn- slóðir dreymdi um og beztu menn landsins börðust fyrir og öll stjórnmálastarfsemi í landinu miðaðist við sem sjálfsagðan hlut. — Nú er auðvaldsáróðurinn smátt og smált að gera sjálfstæði landsins

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.