Réttur - 01.11.1962, Blaðsíða 36
308
R É T T U R
að tryggja öryggi Kúbu, og gegn því eru Kúbumenn að sjálfsögðu
reiðubúnir til að draga úr bervæðingu sinni; þeir myndu verða
þeim degi fegnastir þegar þeir gætu létt benni af sér að fullu. Þegar
Kennedy, forseti Bandarikjanna, háði kosningabaráttu sína haust-
ið 1960 var Kúba mjög á dagskrá ekki síður en nú. Kennedy birti
þá áætlun í sex liðum um leiðir til að hrekja Fidel Castro frá völd-
um á tveimur árum. Þau tvö ár eru nú liðin, og þá stendur Kenn-
edy í þeim sporum að hann hefur tekið að sér að tryggja öryggi
þeirrar stjórnar sem hann hafði einsett sér að fella. Enda eru of-
stækismenn í Bandaríkjunum mjög liáværir í fordæmingu sinni á
þeim samningum um öryggi Kúbu sem nú eru hafnir, og ýmsir
Islendingar telja ekki eftir sér að taka þátt í þeim kór. Samningar
þessir verða eflaust langvinnir og erfiðir, en vonandi tekst að
lokum að tryggja Kúbubúum einhverja friðhelgi, svo að þeir geti
létt af sér hinni þungu hervæðingarbyrði og snúið sér af allri orku
að þeim verkefnum sem voru tilgangur byltingarinnar. Þá hefði
Kúbustjórn náð markmiði sínu og alþýða manna á Kúbu og um
heim allan myndi draga andann léttar.
*
Uppreisnarmennirnir á Kúbu hafa farið langa leið siðan þeir
voru útlagar á fjallstindum í landi sínu. Þeir hófu baráttu sína til
þess að framkvæma þær einföldu hugsjónir sem hver maður elur
með sér, tryggja landi sínu frelsi, löndum sinum jafnrétti, þekk-
ingu og lífshamingju; franski heimspekingurinn Jean-Paul Sartre
hefur kallað byltinguna á Kúbu byltingu mannúðarinnar. Þessar
hugsjónir voru jrnu flugskeyli sem •Bandaríkin skelfdust í raun og
veru, þetta voru þa;r kjarnorkuhleðslur sem auðmenn Bandaríkj-
anna óttuðust að lostið geti niður í horgum rómönsku Ameríku.
Þess vegna var hugsjónabyllingunni haslaður völlur á skákborði
valdstefnunnar. En forustumennirnir á Kúbu kunna einnig þann
leik. í heilan áratug hafa þeir sameiginlega horfzt i augu við dauð-
ann, oft dag hvern, þeir hafa barizt hlið við hlið gegn algeru ofur-
efli, þeir hafa margsinnis átt hver öðrum líf að launa, orðið einn
hugur og einn vilji. Þetta eru ungir og þróttmiklir menn, Fidel
Castro er aðeins 36 ára og ýmsir félagar hans enn yngri, og allir
eru jreir óvenjulega mikilhæfir hver á sínu sviði. Maður Jiarf ekki
að veríi lengi í návist Fídels Castro tU að skilja að þar fer einn af