Réttur - 01.11.1962, Blaðsíða 48
320
R E T T U R
og endanlegar lausnir lágu ekki á borðinu. Auk óteljandi daglegra
verkefna voru hér viðfangsefni sem kröfðust umhugsunar og yfir-
legu.
I fyrsta lagi verður að hafa í huga að obbinn af meðlimunum
kemur úr verkalýðsstétt, og ekki er hægt að ætlast til þess að þeir
öðlizt á einni nóttu flokkslega þjálfun, bæði fræðilega og pólitíska.
Og ekki verða þeir heldur þjálfaðir með því einu að koma á fót
svo og svo mörgum flokksskólum og námshópum, þótt þeir séu
einnig nauðsynlegir. Flokkurinn sjálfur og hin daglega barátta
verður að vera þeim fræðilegur og pólitískur skóli.
Til þess að skipuleggja fjöldaflokk urðum við að fara ótroðnar
slóðir. Enn sem fyrr er lýðræði með miðstjórnarfyrirkomulagi
grundvallaratriði. Flokkseiningar á vinnustöðvum — einkum í verk-
smiðjum — eru og sjálfsagðar. Þá eru svæðafélög eða „deildir“
einnig mikilvæg. Svæðafélögin eiga oft völ á góðum húsakynnum og
hafa stöðug og fjölþætt sambönd við meðlimi flokksins, fylgismenn
og fólk yfirleitt. Mikið starf er unnið eftir þessum leiðum.------
Óll samtök flokksins verða að taka virkan þátt í stjórnmálum.
Það verður að berjast ötullega gegn hvers kyns skriffinnsku sem
háir lýðræðinu í flokknum, virkja alla félaga í starfi, stuðla að
frjóum umræðum og nauðsynlegri endurnýjun áhugaliðsins. Reynsl-
an hefur sýnt oss að sérhver skerðing á innra lýðræði flokksins
veikir tengsl hans við alþýðuna og jafnvel mikinn hluta flokks-
manna.
Þá verður að hafa í huga að gerð flokksins sem fjöldaflokks er
ekki fengin í eitt skipli fyrir öll. Stöðug endurnýjun og aukning
flokksliðsins er nauðsynleg til að treysta böndin við fólkið og
tryggja stöðugt aðstreymi nýrra starfskrafta. Og í því samhandi
verður að hafa í huga breytingarnar í efnahagslífinu, stjórnmálum
og á lífskjörum fólksins.
Á ári hverju falla u. þ. b. 80—100 þúsund flokksfélagar út af
skrá. Þetta er ekki mikið í flokki með hart nær tvær milljónir með-
lima. Hér eru að verki eðlilegar ástæður (dauðsföll) og þjóðfélags-
legar, t. d. bústaðaskipti. Hin síðari ár hafa hundruð þúsunda
flæmzt úr landi og annað eins flutzt frá einu landshorni á annað.
Hin hatrama stéttabarátta í Ítalíu leiðir einnig af sér úrsagnir úr
flokknum. Verkamenn sem fara af þeim sökum fylgja að jafnaði
flokknum áfram. En við verðum að afla 100 þúsund nýrra með-
lima árlega til að halda í horfinu.