Réttur


Réttur - 01.11.1962, Blaðsíða 53

Réttur - 01.11.1962, Blaðsíða 53
H É T T U R 325 Portúgal er lítið land, en nýlenduveldi þess er 2.090.000 ferkíló- metrar, eða hér um bil 23 sinnum stærra en Portúgal. En á sama tíma og Portúgal arðrænir nýlendur sínar, er Portúgal sjálft nýlenda, sem er arðrænd og sem erlendir heimsveldissinnar stjórna. Menn ættu að minnast vel þessa tvöfalda hlutverks, þegar þeir hugleiða aðstöðu Portúgals í heiminum í dag og þann stuðning, sem Banda- rikin, Bretland og önnur nýlenduveldi veita nýlendustjórn Salazars. „Lagarefjar" Salazars. Þegar nauðsynlegt var að fara í kringum ákvæði stofnsáltmála Sameinuðu þjóðanna um nýlenduveldi, flýtti Salazar sér að breyta stjórnarskrá Portúgals á þann hátt, að héðan í frá skyldu nýlend- urnar ekki heita nýlendur heldur „héruð“ í Portúgal! A þann hátt átti „þriðja stærsta nýlenduveldi heimsins“, sem portúgölsku fas- istarnir höfðu gortað svo mjög af, að hætta að vera til. Og í mörg ár studdu Bandaríkin, Bretland og aðrir bandamenn Salazars þessa skilgreiningu hans á portúgölsku nýlendunum og gerðu þannig porlúgölsku nýlendukúgurunum kleift að halda ótruflaðir ófram arðráni sínu. Yfirlýsing 15. allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um sjálfstæði nýlendna markar tímamól í haráttunni gegn nýlendukúgun. Ein sam- þykkt allsherjarþingsins kvað svo um að hin svokölluðu „héruð“ Portúgals í Asíu og Afríku væru nýlendur og hað Salazar um „að gefa upplýsingar“ um þær. Salazar hjóst að sjálfsögðu við stuðningi bandamanna sinna í NATO, eins og liann hafði notið hingað til. Að nefna Portúgal ný- lenduveldi kallaði hann kommúnisma. En aðeins fimm fulltrúar Allsherjarþingsins greiddu atkvæði með Salazar. Sumir handamenn Portúgals í NATO greiddu atkvæði á móti honum. Bandaríkin og Bretland ákváðu að sitja hjá. Það gat verið of hætlulegt að sýna sitt rétta andlit. Salazar var einangraður. „Menningarhlutverk" nýlendukúgaranna. Portúgalska þjóðin er að sjálfsögðu hreykin vegna hinna miklu landafunda og siglinga forfeðra sinna. En hún er ekki hreykin vegna þeirra glæpa, sem stjórnendur þjóðarinnar frömdu í kjölfar þessara landafunda. Hún getur ekki sætt sig við arðrán nýlendnanna, við þrælasöluna og þrælahaldið. Þvert á móti fordæmir portúgalska
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.