Réttur - 01.11.1962, Qupperneq 8
280
R E T T U K
í augum stjórnarinnar að gamaldags, úreltu slagorði, sem einungis
vondir kommúnistar hafi gagn af.
Og á sama hátt myndi þessi auðvaldsáróður leika íslenzkt þjóð-
erni, íslenzka tungu, íslenzka menningu, þegar herrarnir, er honum
stjórna, þyrðu og álitu tíma til kominn. Máske ætti maður þá eftir
að heyra þau rök, hve heppilegt það hafi verið fyrir Ira að týna að
mestu tungu sinni í tíma, svo Bernard Shaw skrifaði heldur á ensku
en írsku, — og hvaða tjón það hefði verið fyrir Island og umheim-
inn að Halldór Kiljan Laxness hafi verið að fást við það að skrifa
á íslenzka tungu í stað þess að rita á ensku, sem hefði verið miklu
ódýrara og hagsýnna í hvívetna.
Þess vegna er sú hagsmuna-, stétta-, menningar- og sjáljstœðis-
barátta, er vinnandi og hugsandi þjóð lslands nú heyr, um leið bar-
áttan fyrir tilveru j>jóðar og þjóðernis, barátta er varðar líf eða
dauða, — baráttan gegn því að í Ragnarölcum auðvaldsins á jörð-
inni sogist íslenzk j>jóð með feigum aðli auðsins niður í djúp
sögunnar.