Réttur


Réttur - 01.11.1962, Síða 10

Réttur - 01.11.1962, Síða 10
282 RÉTTUR ■■ '• 3 - t. .. ----- að móta framtíðarskipulag samlaka sinna heldur heimtuðu að verða þar úrslitaaðilar. Framrétta hönd Alþýðusambandsins um alla hugs- anlega aðstoð í hagsmunabaráltu verzlunarfólks virtu þeir einskis, enda alkunnugt að þeir hafa aldrei hreyft hönd að því að bæta kjör þess heldur látið sér nægja að hirða molana af borðum húsbænda sinna eða í bezta falli hirt árangurinn af kjarabaráttu verkalýðs- félaganna fyrirhafnarlaust. Augljóst er því að tilgangurinn með allri harðsækninni til þess að komast inn í Alþýðusambandið sem sterkur áhrifaaðili var ekki af þeim toga spunninn að með því yrði bætt aðstaða verzlunarfólks til þess að bæta kjör sín. 011 sú aðstoð, sem Alþýðusambandið gat veitt verzlunarfólki í hagsmunabaráttunni var til reiðu, en var ekki þegin. I stað þess hóf forusta L.I.V. mála- rekstur gegn sambandinu og sýndi því jafnframt á annan hátt fullan fjandskap. M. a. notuðu forustumenn L.l.V. sambönd sín við erlend verzlunarmannasamtök til rógburðar um A.S.Í. og í verki sannaðist hugur þeirra til verkalýðshreyfingarinnar í vinnudeilunum 1961, þegar þeir einir allra launþegasamtaka synjuðu allri aðild að fjár- söfnun til verkamanna, sem þá áttu í langvinnum verkföllum. En eftir sigur verkamanna komu þessir sömu foringjar verzlunarfólks til atvinnurekenda og báðu þá náðarsamlegast um sömu kauphækkun og verkamenn höfðu náð fram! Það er auðvitað hverju harni ljóst að tilgangur íhaldsforingja L.I.V. með því að troða sér inn í A.S.Í. var ekki af hagsmunaástæð- um sprottinn heldur sá einn að efla Sjálfstæðisflokkinn — flokk atvinnurekenda — til áhrifa og valda innan verkalýðssamtakanna. Og er þar komið að kjarna þessa máls. Baráttan fyrir verndun lífs- kjara alþýðu og fyrir því að bæta þau, baráttan um tekjuskipting- una, um Iýðréttindin hefur um langt skeið orðið að heyja á íveim vígstöðum. Annars vegar við atvinnurekendur og ríkisvald, hins vegar við íimmtuherdeildarstarfsemi stéttarandstæðinganna innan verkalýðssamtakanna. Grundvallarskilyrði fyrir sigursælli hags- munabaráttu hefur alltaf verið og mun alltaf verða að til séu verka- lýðssamtök, sem eru hagsmunalega og skipulagslega fær um að gegna hlutverki sínu og lúta í engu forsjá eða fyrirmælum þeirra, sem við er að berjast, auðmannastéttarinnar. Þennan sannleika þekkja broddar íslenzku auðmannastéttarinnar fullkomlega og í samræmi við þá þekkingu hafa þeir háð linnulausa baráttu fyrir því að ná undirtökunum á sjálfri verkalýðshreyfing- unni, rugla siðgæðisvitund hennar, lama baráttuþrek hennar, gera

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.