Réttur - 01.11.1962, Page 12
284
R É T T U R
Ríkisstjórninni mun hafa þótt nóg að gert í bili. Það birtust engir
borðalagðir þjónar réttvísinnar við anddyri K.R.-skálans við þing-
setninguna í fylgd Sverris Hermannssonar og hvorki sást liann þar
sjálfur né aðrir hinna 33 „fulltrúa“, L.I.V., en sat löngum á tali við
ráðherra niðri í Alþingishúsi. Og niðurstaðan varð sú að bíða
átekta og sjá hversu það lið innan veggja þingsins dygði, sem annað
tveggja skoðaði sig þar sem fulltrúa rikisvaldsins eða kynni að
verða hugdeigt í andstöðunni gegn valdníðslunni.
A þinginu bar mál L.I.V. að þannig, að um það bil sem afgreiðslu
kjörbréfa var að ljúka lagði Öskar Hallgrímsson, sem sæti átti í
kjörbréfanefnd,til aðkjörbréf fulltrúa L.Í.V. yrðutekinlil afgreiðslu.
Bent var á að hvorki hefði L.I.V. verið tekið inn í sambandið sam-
kvæmt lögum þess né lieldur látið svo lítið að sækja um inngöngu.
Væri því ótímabært að fjalla um kjörbréf fyrr en venjuleg inntöku-
beiðni lægi fyrir. I samræmi við þetta fluttu þeir Eðvarð Sigurðs-
son, Jón Snorri Þorleifsson og Björn Jónsson frávísunartillögu við
tillögu Óskars Hallgrímssonar. Þessi frávísunartillaga var felld með
165 atkv. gegn 150 og þar með samþykkt að fjalla um kjörbréfin.
Mun almennt litið svo á að þar með hafi dómur Félagsdóms raun-
verulega haft framgang. Atkvæðagreiðsla um sjálf kjörbréfin fór
svo þannig að samþykkt var með 177 alkv. gegn 151 tillaga þess
efnis að vísa öllum þeim gögnum L.Í.V., sem þau voru byggð á, til
rannsóknar væntanlegrar miðsljórnar, enda margupplýst með fjölda
dæma, að þar var margt mjög á annan veg en samrýmst gæli lögum
Alþýðusambandsins, en hinsvegar úlilokað að framkvæma slíka
rannsókn, m. a. á meðlimaskrá LÍV, á þeim tíma, sem Alþýðusam-
bandsþing hefur til umráða.
Loks var samþykkt með 180 atkv. gegn 102 svofelld fordæmingar-
ályktun um dóm Félagsdóms:
„28. þing Alþýðusambands Islands mótmælir harðlega dómi þcim,
sem 3 af 5 dómendum Fclagsdóms kvóóu upp þann 12. þ. m. i móli
L.I.V. gegn Alþýðusambandi íslands.
Með dómi þessum er stefnt að því að svifta Alþýðusamband ís-
lands þeim skýlausa rctti, sem öllum frjólsum fclagasamtökum ber,
þ. e. að ókveða sjólf hverjir séu meðlimir þcirra ó hverjum tima.
Þingið telur að þcssi dómur, sem ó sér engin fordæmi í íslcnzkri
réttarfarssögu, eigi hvorki stoð í lögum né heilbrigði réttarvitund.
Um leið og þingð lýsir undrun slnni yfir og mótmælir þcssum ein-