Réttur - 01.11.1962, Blaðsíða 13
R É T T U R
285
stæða stéttardómi varar það við þeirri ógnun, sem slík misbeiting
dómsvaldsins, sem hér hefur ótt sér stað, er við öll frjóls félagasam-
tök í landinu og heifir ó alþjóð að standa vörð um grundvallarréttindi
þeirra."
Þegar þessi liarðorða og einarða samþykkt þingsins er höfð í
huga er auðsætt hver hugur meirihluta þingsins var til hinnar ein-
stæðu misbeitingar á dómsvaldinu. Þessi samþykkt sannar einnig,
að sá naumi meirihluti, sem fékkst fyrir því að fella frávísunartil-
löguna, er áður getur, hefur eingöngu byggst á nauðung, þeirri
nauðung sem hótanir um valdbeitingu og klofning samtakanna skap-
aði; að meðal allmargra þingfulltrúa var réttarvitundin ekki sam-
ferða þeim kjarki, sem til þurfti til þess að verkalýðshreyfingin
gerði kjörorðið: þol eigi órétt að sínu í verki.
Sem vænta mátti, brugðust fulltrúar ríkisstjórnarinnar á Alþýðu-
sambandsþingi hið versta við þeim gerðum þingheims, sem hér hefur
stuttlega verið skýrt frá. Vildu sýnilega ekkert annað þola heldur en
algera undirgefni við valdið, jafnvel langtum meiri en Félagsdómur-
inn kvað á um. Höfðu þeir ýmist í hótunum eða reyndu að spilla
störfum þingsins. Náðu ofbeldishótanirnar hámarki með yfirlýsingu
er sex af foringjum stjórnarliðsins fluttu, þ. e. þeir Eggert Þorsteins-
son, Oskar Hallgrímsson, Pétur Sigurðsson, Guðjón Sigurðsson,
Jón Sigurðsson og Pétur Guðfinnsson. I yfirlýsingu þeirra segir
m. a. að „sá ,,meirihluti“, sem hér hefur myndast er því til orðinn
í krafti athafna, sem ekki eiga neina stoð í lögum ASI, né þeim
venjum, sem skapast hafa við afgreiðslu kjörbréfa á þingum sam-
bandsins.------lýsum við því yfir, að við teljum þessar og síðari
gjörðir Jíessa þings, J>ar á meðal vœntanlegt stjórnarkjör, ólögleg-
ar. ■—- -—-
Glöggt er af þessari dæmalausu yfirlýsingu, að þeir sexmenning-
arnir, eru að reyna að halda opnum leiðum til þess að dómsvaldinu
verði enn á ný misbeitt gegn verkalýðssamtökunum, ■— vafalaust í
samráði við yfirboðara sína í ríkisstjórninni. Kannski er sú fyrir-
ætlun hugleidd í fullri alvöru að láta Félagsdóm dæma löglega
kjörna stjórn ASl frá völdum? En svo mikið er víst að afturhaldið
mun leita allra leiða til þess að gera verkalýðssamtökunum og lög-
legri forustu þeirra sem erfiðast fyrir og beita til þess hverjum þeim
baráttuaðferðum, sem vald þess og kraftur leyfa. Og víst er að ekki
verður vandað til meðala, allra sízt ef svo illa færi að kosningarnar