Réttur


Réttur - 01.11.1962, Page 20

Réttur - 01.11.1962, Page 20
292 R E T T U R Allir rauna hvað Þjóðabandalagið var. En Georgi Dimitroff krafðisl þess að einnig þessi stofnun yrði hagnýtt í þágu friðarins. „Sá sem neitar því að fólkið geti haft áhrif á Þjóðabandalagið og einstakar kapítalistískar ríkisstjórnir," skrifar hann, „er ekki bylt- ingarmaður heldur kjaftaskur.“ Áhyrgð og erfiðleikar friðarbarállunnar lögðust á herðar verka- lýðsstéttarinnar. Til að framkvæma það hlutverk sem henni var ætlað þurfti hún að ná einingu innan vébanda sinna og á alþjóð- legum vettvangi. Að áliti Dimitroffs skyldi þessi eining á alþjóð- legum vettvangi koma fram í „sameiginlegri alþjóðlegri stjórn- málastefnu verkalýðsins með verndun friðarins að höfuðmarkmiði.“ Og þó ekki tækist vegna afstöðu hægrisinnaðra foringja sósíaldemó- krata sem héldu áfram skammsýnni andkommúnistískri pólitík — þótt ekki tækist á þessum tíma að mynda þá friðarfylkingu sem Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna og aðrir kommúnistaflokkar börðust fyrir, þá voru hugleiðingar Dimítroff um möguleika á því að vernda friðinn fullkomlega réttar. Nú þegar til er voldugt kerfi sósíalistískra ríkja og friðaröflin í öllum löndum hafa eflzt hefur hin kommúnistíska hreyfing hagnýtt sér á skapandi hátt skoðanir hinna beztu marxista á friðarmálum og tekið ákveðna og ljósa afstöðu til verndar mannkynsins gegn atómstyrjöld. I yfirlýsingu ráðstefnu kommúnistaflokka og verka- lýðsflokka haldinnar í Moskvu segir: „Sá tími er kominn að hægt er að koma í veg fyrir tilraun heimsveldissinnaðra árásarseggja til að hefja heimsstyrjöld. Með sameinuðu átaki sósíalistísku ríkjanna, verkalýðs heimsins, þjóðfrelsishreyfinganna, allra friðarsinnaðra ríkja og friðarafla er hægt að koma í veg fyrir nýja heimsstyrjöld.“ Og marxistar gera hér ekki ráð fyrir því að eðli heimsveldisstefn- unnar hafi hreytzl heldur að skapazt hafi þau öfl, sem geta að engu gert árásaráform hennar. I dag þegar friðarharáttan hefur sérstaklega mikla þýðingu hafa orð Dimitroffs um „sameiginlega alþjóðlega stjórnmálastefnu verkalýðsins“ góðan hljómgrunn. Þessi meginregla hlaut alhliða túlkun í skjölum ráðstefnu kommúnista- og verkalýðsflokka í Moskvu. Á þeim tíma þegar stórauðvaldið gerði fasismann að trompi sínu og lifakkeri þurftu öll herfylki verkalýðsins að sameinast tafarlaust. Kommúnistar voru fánaberar samfylkingarinnar og settu það skil- yrði eitt að hinum sameiginlegu aðgerðum væri beint gegn fasisma,

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.