Réttur


Réttur - 01.11.1962, Page 42

Réttur - 01.11.1962, Page 42
314 RETTDE tísks útópisma, voru án efa eitt máttugasta aflið að baki byltingar- innar og síðar umsköpunar hagkerfisins. Þessi nýju skipulagsform náðu meiri útbreiðslu og þróuðust miklu hraðar en nokkur gat séð fyrir, sér í lagi eftir að miðstjórn Kommúnistaflokksins hafði á fundi 29. ágúst lagt blessun sína yfir kommúnurnar sem nýtt form á samtökum sveitaalþýðunnar (gert var ráð fyrir, að í framtíðinni breiddust þær einnig út til borganna), sem sameinaði yfirstjórn landbúnaðar- og iðnaðarfram- leiðslu, stjórnarfarsleg, hernaðar- og uppeldishlutverk; sérkenni þeirra voru ennfremur talin þau, að hér væri fyrir hendi vísir að eignarhaldi allrar alþýðu á framleiðslutækjunum og kommúnurnar gætu því gegnt höfuðhlutverki í umsköpun þjóðfélagsins á komm- únískum grundvelli. Samþykkt miðstjórnarinnar um þessi efni bar annars greinilega svip af hinum venjulegu starfsaðferðum flokksins: að byggja sem mest á reynslunni, gefa ekki ströng fyrirmæli nema í almennustu atriðum og láta díalektískri víxlverkan hinna ýmsu þjóðfélagsþátta eftir að móta þróunina í smáatriðum. En hvað þessi framkvæmdaatriði snertir, fóru þau á næstu mánuðum langt fram úr öllum spádómum, ekki einungis þeim utan- aðkomandi. Kommúnuhreyfingin óx með ótrúlegum hraða. An þess að slá fram nokkrum hæpnum fullyrðingum (það er enn sem komið er mjög erfitt, sér í lagi fyrir útlendinga, að leggja fullnaðardóm á þessa hluti), er rétt að benda á nokkur atriði. Kommúnurnar voru í hæsta máta frumleg tilraun, þær gátu ekki byggt á nokkurn hátt á þeirri reynslu, sem hin alþjóðlega verkalýðs- hreyfing liafði áður aflað sér. Þær voru áfangi í leitinni að hæfi- legum skipulagsformum fyrir það þjóðfélag, sem sprottið hafði upp úr kínversku byltingunni og gat auðvitað ekki líkt umhugsunar- laust eftir öðrum löndum, kapítalískum eða sósíalískum. I öðru lagi hefðu kommúnurnar aldrei komið til sögunnar, ef kínverska byltingin befði einkennzt af frumkvæði öreiga og rót- tækra menntamanna; þær voru þvert á móti bein afleiðing þess, að byltingin skaut frá upphafi djúpum rótum í sveitunum og for- ystusveit hennar, Kommúnistaflokkurinn, var nátengd (og stund- um eitt og hið sama) byltingarsinnaðasta hluta bændaalþýðunnar, þaðan sem einnig komu þau öfl, sem frumkvæði höfðu um stofnun og útbreiðslu kommúnanna, og einkenndust auðvitað bæði af já- kvæðum og neikvæðum hliðum þessarar stéttar. Auk þessa ber þess að gæta, að jafn-hröð þjóðfélagsbreyting og sú, sem fylgdi í kjöl-

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.