Réttur


Réttur - 01.11.1962, Síða 44

Réttur - 01.11.1962, Síða 44
316 k É T T U U að nýju þá þætti þjóðarbúskaparins, sem gengið höfðu úr skorð- um. Næstu mánuðir leiddu í ljós, að hér var aðeins um að ræða fyrsta skrefið í aðlögun efnahagslegra og pólitískra markmiða að hlut- verulegum skilyrðum, aðlögun, sem varð enn þá nauðsynlegri vegna þess, að á eftir truflunum haustsins 1958 fylgdu þrjú ár óvenjulega óhagstæðs veðurfars, sem í sumum héruðum leiddu til algers neyð- arástands. Þetta jók auðvitað um allan helming þá erfiðleika, sem áltu upprunalega rætur sínar í pólitík „stökksins mikla“ og upp- byggingu kommúnanna. Sumarið 1959 reyndist því nauðsynlegt að gera ýmsar óvæntar ráðstafanir, efnahagslegar og aðrar, og er mjög líklegt, að á undan þeim hafi farið ákafar umræður innan flokksins og ýmsar tillögur til úrbóta verið ræddar. A miðstjórnar- fundi í ágúst var framkvæmd rækileg efnahagsleg endurskoðun á öllum þeim áætlunum, sem gerðar höfðu verið í upphafi stökksins mikla. Lagt var nú nýtt mat á ýmsa lduti, meðal annars hlutdeild mennlamanna í uppbyggingu sósíalismans (mörgum af þeim, sem árið 1957 höfðu verið „settir utangarðs við þjóðfélagið“ og sakaðir um hægri villu, var nú veitt uppreisn æru í tilefni af tíu ára afmæli byltingarinnar og þessu var síðan haldið áfram 1960 og fór mjög í vöxt 1961; þá fór það einnig að ná til ýmissa þeirra innan flokks- ins, sem fordæmdir höfðu verið fyrir endurskoðunarstefnu og and- stöðu við grundvallarlínu flokksins.) Endurskoðun átti sér stað á hlutverki hinna ýmsu þátta í þjóðfélagslegum framförum: t. d. var nú lagt miklu meira upp úr hinni hlutlægu efnahagslegu þróun í samanburði við virkjun fjöldans, meiri áherzla var lögð á traustar og áreiðanlegar hagskýrslur og nákvæmt vísindalegt mat á mögu- leikum í stað skýjaborga. Árið 1959 var þó ástandið enn mjög óljóst og mörg fyrirbæri voru í augljósri mótsögn við þessar ráðstafanir, t. d. harkalegar aðfarir gagnvart hægri arminum innan flokksins. Á næsta ári styrkt- ist hin nýja stefna og tók á sig fastara form; það ár áttu Kínverjar, eins og áður er sagt, við að etja mikla erfiðleika, sem byrjuðu í landbúnaðinum, en höfðu svo auðvitað sín áhrif á iðnaðinn. llaustið 1960 var byrjað að innleiða ýmsar breytingar á skipulagi kommún- anna (farið var þó mjög gætilega í sakirnar og þess gætt að haga þeim eftir skilyrðum á hverjum stað). Lægra settar stofnanir innan þeirra fengu mikil völd, sér í lagi s. sn. framleiðslusveitir (þær sam- svöruðu fyrrverandi samyrkjubúum), en einnig enn minni einingar

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.