Réttur


Réttur - 01.09.1963, Side 20

Réttur - 01.09.1963, Side 20
148 R E T T U K sameiginleg jarðrækt eiga að auðvelda það að landbúnaðarfram- leiðslan aukist skjótt. En afstaða bændanna sjálfra mun auðvitað skera endanlega úr þessu vandamáli. A sviði iðnaðarmála stefnir stjórnin að því að stofna við hlið hinna þjóðnýttu fyrirtækja ný ríkisfyrirtæki sem eiga að styrkja hinn félagslega þátt framleiðslunnar og efnahagslífið í heild. Að því er stjórnmálin varðar beitir Ben Bella sér fyrir hugmynd- inni um eins flokks kerfi; hann bendir á að á styrjaldarárunum hafi sigur unnizt ineð einingu allra þjóðlegra afla, og eins muni eining undir forustu eins flokks nú stuðla að því að tryggja nauðsynlegar framfarir. Hann er þeirrar skoðunar að flokkurinn eigi ekki að vera fjölmennari en 150 Jiúsundir manna. Hann hefur beitt sér gegn Jjví að Kommúnistaflokkurinn starfaði áfram en sagt að félags- mönnum hans sé opin leið inn í nýja flokkinn; kommúnistar hafa hins vegar haldið Jjví fram að tryggja bæri einingu með banda- lagi allra lýðræðisafla sem síðan gæti þróazt í forustuflokk. Eins og nú er háttað má segja að Alsír sé að festa þjóðfrelsis- sigur sinn í sessi. Eftir ])ví sem ríkisfyrirtækjum vex fiskur um hrygg og áhrif auðborgara dvína getur atvinnulíf Alsírs þróazt utan marka auðvaldsskipulagsins í átt til sósíalisma.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.