Réttur - 01.08.1964, Page 50
178
R E T T U R
ferðileg og andleg afrek. Hver sá andans maður, sem kennir til í
stormum sinnar tíðar, og talar til samtíSar sinnar sem boSberi fram-
tíðarinnar, finnur einnig það bergmál hjá fólkinu, sem magnar hann
tii enn stærri verka, sem „máttkva og stækka múginn“, um leið.
Svo hefur það verið um hverja mikla frelsis- eða framfarahreyfingu
hjá mannkyninu — og svo er það enn.
*
Halldór Kiljan Laxness sagði svo frá viðtali, er hann átti við
Nehru, þjóðarleiðtoga Indverja:
„Hann spurði mig að því, hvernig á því stæði að smáþjóð lengst
úti í Norður Atlantshafi hafi á miðöldum getað skapað einn af
heimsliteratúrunum, þjóð, er hefði ekki talið Joá nema svo sem 60
þúsund íbúa. Hvaða skýring væri á því? .... Eg hef ekki enn
getað svarað spurningu þessari.“
Stíllist fornbókmennta vorra er mál út af fyrir sig, sem ég mun
ekki reyna að skýra. En reisn þeirra, sérstæðar stórfenglegar per-
sónur þeirra, einkum íslendingasagna, og boðskapur þeirra á allt
rætur sínar að rekja til sérstöðu þeirrar þjóðar og þjóðfélags, sem
skapar þær. Hið sérkennilega íslenzka þjóðfélag frjálsrar bænda-
stéttar, með arf stéttlauss ætlarsamfélags í hugarfari sínu, stendur
í andstöðu við alla Evrópu aðals- og konungsvalds. Og Islendingar
cru sér meðvitandi þessarar sérstöðu og andstöðu. Þjóðin er gegn-
sýrð af þeirri tilfinningu að hún verði að varðveita þetta þjóðfélag
af því það sé frjálsara og betra en mannfélag meginlandsins. Hún
mótar sinn gamla arf og skapar nýtt til viðbótar, beint út úr veru-
leika þjóðfélags síns, — en allt í þessum anda. í íslendingasögunum
og öðrum bókmenntum hennar kristallaðist frelsisvilji hennar, þær
eru sú mynd, sem hið andlega átak Jjjóðar, sem finnur sig eina í
heiminum með góðan málstað, fær á sig, er hún magnar allan sköp-
unarjirótt sinn til að standast í sínu helga stríði. (Á íslandi var Jretta
þá fyrst og fremst spurningin um persónuleika, stolt, manngildis-
tilfinningu hvers einstaklings og þarmeð þjóðarheildarinnar í lífi
og list. 1 Frakklandi borgarabyllingarinnar og Rússlandi sovétbylt-
ingarinnar er það hin félagslega mögnun hins nýfrjálsa manns með
vopn í hönd gegn öllum heiminum, sem vinna kraftaverkin í bylt-
ir.garstríðunum. Á Islandi þjóðveldisins fær hin sama siðferðilega
mögnun bókmenntalega útrás).
*