Réttur - 01.11.1964, Síða 22
214
R E T T U H
gefa verður gaum — livað sem líður stjórnmálaskoðunum eða
fræðilegum hugmyndum.“ I all mörgum háskólum eru nú fluttir
fyrirlestrar um marxisma og sósíalisma, og það er alls ekki sjald-
gæft að sjó bandaríska stúdenta lesa Kommánistaávarpið eftir
Marx og Engels, Þróun jajnaðarstefnunnar jrá hugsjón til veru-
leilca eftir Engels, Ríki og byltingu og Heimsvaldastejnuna eftir
Lenin.
AIMS er komið á fót sem viðurkenningu ó þessu breytta við-
horfi í bandarísku þjóðlifi og til að stuðla að áframhaldandi
þróun þess. Þetta eru samtök karia og kvenna, sem vilja auka og
bæta þekkingu á marxisma í Bandaríkjunum. Stofnunin er óháð
stjórnmálabaráttu. Verksvið hennar er rannsóknir, bókfræði, nám,
umræður og skipti á skoðunum. Hún mun láta í té bókasafnsþjón-
ustu, vera ráðgefandi og miðla fræðslu. Stefnt verður að því að
breyta einhliða árósum og eintali í umræður milli marxískra fræði-
manna og þeirra, sem aðhyllast hann ekki.
Það eru fjórir hópar manna, sem stofnunin mun einkum snúa
sér til:
þeirra, sem viðurkenna gildi marxismans;
þeirra, sem neita gildi marxismans, en laðast að áhrifum lians;
þeirra, sem finnst marxisminn að vísu ekki aðlaðandi, en við-
urkenna mikilvægi hans og að taka verði hann alvarlega;
þeirra, sem taka enga ákveðna afstöðu til marxismans, en telja
bannfæring hans skaðlega vísindunum og ósamboðna borgaralegu
frelsi.
Starfssviðin verða fjögur: bókfræði, kennsla, ranr.sóknir og
kynning.
Stofnunin mun gefa út skrá yfir marxískar bókmenntir — eink-
um á ensku — með umsögnum, án þess þó að einskorða sig við
það tungumál. Ennfremur sérstaka ársfjórðungsskrá yfir útgáfur
í Bandaríkjunum og greinar. Verður þar getið helztu bóka og
ritgerða á öllum sviðum vísinda og umsagnir um þær athyglis-
verðustu, hvort sem þær eru marxískar eða ekki.
Þá mun stofnunin gefa út marxíska bókfræði fyr.ir öll svið
mannlegrar þekkingar, í sérstökum ódýrum heftum. Þar verða um-
sagnir um bækur og einnig rúm fyrir tillögur um aðkallandi rann-
sóknarefni.
Framkvæmd verður nákvæm og kerfisbundin athugun ó þeirri
kennslu um „kommúnisma“, sem krafist er eða mælt er með við