Réttur - 01.10.1930, Page 1
Straumhvörf.
Byltingaröflin og sosialdemokratar.
Það er því augljóst af því, sem að framan er sagt, að
heiminum er nú algerlega skift í tvo fjandsamlega
flokka, sem búast til að heyja úrslitaorustuna, tvær
andstæðar heimsskoðanir, sem lýstur saman í hinni
ógurlegustu baráttu, tvö voldug öfl, annað hnígandi
fulltrúi hins forna auðvaldsskipulags, hitt rísandi
máttur verkalýðsins og sosialismans.
Með auðvaldinu standa öll öfl hins gamla þjóðfje-
lags, konungsvald, aðall, kirkja og klerkar, auðmenn
og embættisvald; — auk þess mentamenn og smáborg-
aralýður að miklu leyti. Auðvaldið hefur enn % hluta
heimsins á valdi sínu og notar óspart öll blöð sín, alt frá
blöðum sosialdemokrata og yfir til fasista, til að breiða
út lygar um Ráðstjórnar-Bandaríkin (RB) og undir-
búa þannig stríð gegn þeim.
Öfl þau, sem nú vinna gegn heimsauðvaldinu, eru
ráðstjórnarríkin, verkalýðshreyfingin og nýlenduupp-
reisnin. Sambandið, sem sameinar þessa þrjá aðilja og
stjórnar samfeldri baráttu þeirra gegn heimsauðvald-
inu er Alþjóðasamband Kommúnista (Kommunistische
Internatjonale, stytt Komintern, einnig kallað 3. Inter-
nationale). Einmitt nú er þessi barátta gegn auðvald-
inu að komast á hástig. Á stórum svæðum í Kína eru
þegar mynduð ráðstjórnarríki. í Indlandi rekur hver
uppreisnin aðra. í Persíu, Egyptalandi og öðrum yf-
21