Réttur - 01.10.1930, Page 31
Rjettur]
SKIPULAGSMÁL VERKALÝÐSINS
343
um, eftir því sem stjettarviturid hans vex. Því meir
sem andstæðurnar skerpast og stiettabaráttan harðn-
ar, því fleiri fylgja í fótspor forustusveitarinnar, þar
til allur verkalýður brunar fram í sameiginlegri árás á
síðasta vígi auðvaldsins.
Aldrei hefir stofnun kommúnistaflokks á íslandi
verið jafn knýjandi nauðsyn og einmitt nú. Allir, sem
nokkuð fylgjast með rás viðburðanna, vita að til stórra
tíðinda dregur um heim allan. Andstæður auðvalds-
skipulagsins eru nú orðnar tröllauknari en nokkru
sinni fyr, og áður en varir lýstur þeim saman með reg-
inafli. Yfir ísland færist atvinnukreppa, sem hlýtur
að hafa í för með sjer magnaðri stjettabaráttu en þjóð-
in hefir áður kynst. Stjett stendur gegn stjett. Hvern-
ig þessari baráttu lýkur veltur auðvitað á því hversu
vænlega tekst með forustuna. En eins og stendur er
íslenskur verkalýður gjörsamlega forustulaus. Og for-
ustulaus stjett á ósigurinn vísan. Stofnun kommúnista-
flokks, sem allur stjettvís verkalýður raðar sjer inn í
og fylkir sjer um, er því fyrsti og nauðsynlegasti und-
irbúningurinn undir baráttuna.
Verkefni kommúnistaflokks er látlaus og ótrauð bar-
átta í broddi fylkingar, þar til auðvaldinu er steypt og
verkalýðurinn hefir tekið völdin og stofnað alræði ör-
eiganna. En þar með er ekki hlutverki hans lokið. Enn
á hann það verkefni fyrir höndum að festa byltinguna
í sessi og hafa á hendi forustu hins vinnandi lýðs, sem
reisir ríki jafnaðarstefnunnar og ljettir ekki fyr en
allur stjettarmunur er þurkaður burt af yfirborði jarð-
arinnar og skipulag kommúnismans er orðið að veru-
leika. Þá fyrst er hinu mikla hlutverki kommúnista-
ílokksins í veraldarsögunni lokið.
Til þess að kommúnistaflokkur geti orðið hlutverki
sínu vaxinn, þarf skipulag hans að vera rjett og bygt
á allri þeirri reynslu, sem verkalýðurinn hefir aflað
sjer með miklum fórnum.