Réttur - 01.10.1930, Blaðsíða 46
[Rjettuv
358 HREYFING ÍSL. ÖREIGAÆSKU
þessi félög er öreiginn velkominn, til að gleyma um
stund striti dagsins og stéttinni, hylla kónginn og fán-
ann, syngja ættjarðarsöngva o. s. frv. Það er brýnt
fyrir unglingunum að élska og tilbiðja fegurðina, hina
æðri, vímukenndu, dulrænu, fegurð, sem blundar í
svæfandi stemningum, í litskrauti og hátiðleik kaþólsku
kirkjunnar, og hinu auðmjúka, þolandi eðli, sem umber
allt, kúgun og órétt. Og loks á það enn þá lindir til að
svala öreigunum. — Vínið og dillandi dans. Vínið er
fyrst og fremst arðberandi framleiðsla. Á borði auð-
kýfingsins er það daglega drukkið með mat. En öreig-
inn svalar sér í lindum þess, þegar örbirgðin herjar á
og örvilnunin grípur hann, þegar honum finnst lífið
yndissnautt. Upplausn og ringulreið hins borgaralega
þjóðfélags birtist í vaxandi vínnautn, dillandi danzi.
Danzinn er orðin Sýki, sem grípur þjóðirnar. Danzinn,
sem annars getur verið gildisrík list, er eykur samstill-
ingu og samræmi. öreigarnir danza og danza, gleyma
stéttinni og hlekkjunum. Þannig er ferillinn í stórum
dráttum. — Auðvitað getur munað svolitlu, hvort ör-
eiginn er í sveit eða kaupstað. En aðalatriðin eru allt
af þessi. — Bernskan er samgróin stéttarhagsmunun-
um, þrautum fjölskyidunnar og þjáningum. En svo
tekur yfirstéttin við uppeldinu og reynir að draga hug-
ann frá stéttabaráttunni og gefa öreigunum ófullkom-
ið brotabrot af lífskoðun sinni. Tækin eru margþætt og
fornhelg: ríkið, trúarbrögð, skólar og ýmisleg félög og
klúbbar. óneitanlega eru áhrifin mikil. Innan öreiga-
stéttarinnar er fjöldi vinnandi lýðs, sem eigi getur
varpað þessum lognu sannindum frá sér, en verður allt
af auðmjúkur og sauðhægur í stéttarbaráttunni. Hann
þarf að finna mátt sinn í uppreisn og samtökum, gleði
sína og öryggi í samvinnu samstiltar stéttar. Uppeldi og
fræðsla sú, er borgarastéttin veitir, er aðferð til að
gylla hlekki öreiganna. En sem betur fer, fellur gyll-