Réttur - 01.07.1972, Blaðsíða 57
NIXONS WEG ZUM FRIEDEN
rrrrrrr
mrm
mrrr Bombenabwúrfe
2000000 Tonnen
mr
m
rrr
1000000 Tonnen
mrrrrmrrmmrrm
rrmrrrrrrrrrrrrrrnr,
rrmrmrrrrmrrrrm
BðOOOOQTonpn MmMWmmim
Þýzka vikuritiS Spiegel birtir þessa skýringarmynd undir fyrirsögninni: Vegur Nixons
til friðar. — Siðan stendur inn í hringnum: Sprengjuvarp Ameríku í þrem stríðum — og
til hliðar: 2. heimsstriðið, — Kóreustriðið, — Víetnamstríðið.
hindra innflutning hrísgrjóna, til að svelta þjóð-
ina til undanláts.
Svo eru þessir stríðsglæpamenn Bandaríkjanna
sífellt að tala um ameríska fanga í Víetnam og
heimta þá lausa — og íslenzka útvarpið birtir um
þetta tíðar fréttir. En aldrei er minnst á víetnömsku
fangana í Suður-Víetnam, sem kvaldir eru og
drepnir í dýflissum amerísku leppstjórnarinnar þar.
Flugmenn Bandaríkjanna eru samkvæmt þeirra eig-
in lögum „loftræningjar", Bandarikin hafa aldrei
sagt Víetnam strið á hendur og standa sjálf að
morði óbreyttra borgara í þúsunda tali. Samt eru
amerisku fangarnir i Norður-Víetnam meðhöndlað-
ir samkvæmt alþjóðareglum — og þeim verður
öllum sleppt, ef Bandarikjaher fer burt og hættir
sínu glæpsamlega árásarstriði.
evrópa næst?
Hershöfðingjar Bandaríkjanna líta á stríð sitt í
Víetnam sem tilraun með hverskonar vopn, — þar
með eitur og annað, — sem nota ætti síðan í
Evrópu, ef til styrjaldar kæmi þar.
Það var nýlega frá því skýrt, að amerískar á-
ætlanir væru til um eitrun mest alls akurlendis i
Mið- og Vestur-Evrópu, ef til striðs kæmi, þvi
Bandarikin reikna með að yfirgefa þau lönd þá.
Áður var kunnugt um fyrirætlanir um að sprengja
stíflugarða við Rin og leggja þannig allan iðnað
Ruhr- og Rín-héraða í rúst á svipstundu.
Hinir stríðsóðu „haukar" Bandaríkjahers og
-stjórnar líta á múgmorðin og hryðjuverkin á
mönnum og náttúru í Víetnam sem tilraunir undir
þriðju heimsstyrjöldina, líkt og hershöfðingjar naz-
ista skoðuðu Spánarstyrjöldina 1936-'39 sem „æf-
ingu" undir síðari heimsstyrjöldina.
Þetta er öllum þeim hollt að hafa í huga, sem
vilja fela sig „vernd" þessa valds og ofurselja
þjóðir sínar undir ógnir þær, sem þessir miskunn-
arlausu valdhafar leiða með köldu blóði yfir þá,
sem þeir segjast vera að „vernda" og „frelsa".
185