Réttur


Réttur - 01.01.1973, Qupperneq 41

Réttur - 01.01.1973, Qupperneq 41
menn vildu fyrst og fremst hafa Lúðvík Jósepsson sem sjávarútvegsráðherra. Iðjuhöldarnir hafa heldur aldrei eignast fulltrúa á Alþingi sem megnaði að taka þar forustu í stjórn- málum innan burgeisastéttarinnar. Aðstaðan hefur þvi orðið sú að lögfræðingahóp- ur Sjálfstæðisflokksins, sem lengst af hefur haft þar forustu, er fyrst og fremst fulltrúi verzlunar- valdsins, en þessir menn sjálfir fyrst og fremst starfsmenn banka- og flokks-kerfisins en ekki úr sjálfu atvinnulífinu. En hlutverk forustunnar i Sjálfstæðisflokknum, sem er hin pólitíska torusta burgeisastéttarinnar, er að reyna eftir mætti að samræma hagsmuni hinna þriggja deilda atvinnurekenda, en tryggja þó forræði verzlunarvaldsins, — og svo auðvitað að véla almenning til fylgis við yfirstéttina með ýms- um ráðum. SVIKAMYLLAN I þeirri fyrstu rækilegu efnahagsrannsókn, sem gerð var á þjóðfélaginu, skýrslunni frá Skipulags- nefnd atvinnumála (,,Rauðku“) 1934 var komizt að þeirri réttu niðurstöðu að: „fjármagnið í verzl- uninni verður að flytja yfir i framleiðsluna" (Bls. 129). Þá var giskað á að fjármagnið í verzluninni væri um 100 miljónir króna, en í útgerðinni aðeins 30—40 milj. kr. Þá var þjóðarauðurinn talinn 395 miljónir króna en erlendar skuldir 93 milj., svo hrein eign var 302 miljónir kr. Það hefur verið verkefni verzlunarauðvaldsins í landinu að hindra þennan nauðsynlega fjármagns- flutning. Jafnframt hefur það verið hlutverk hinnar pólitísku forustu burgeisastéttarinnar að sjá um það, — eftir að verkalýðshreyfingin varð svo sterk faglega og pólitískt að hún gat sigrað í verkföll- um, — að velta öllum kauphækkunum af atvinnu- rekendum yfir á þjóðfélagið. Þetta framkvæmir hún með verðbólgunni: sifelldum verðhækkunum, sem svari við kauphækkunum, sem voru svar við verð- bólgu og launakúgun. Hvernig stendur á að islenzkri atvinnurekenda- stétt þykir rétt og helzt uppi að skipuleggja þannig verðbólgu, sem erlendum auðmannastéttum finnst hinsvegar stórhættulegt? Erlendis eiga auðmenn bankana: Fjármálaauð- valdið vill hafa festu i fjármálalífinu og hefur hags- muni af öruggu gildi gjaldmiðilsins. Hér á landi á rikið bankana og almenningur, þar á meðal verklýðsfélögin spariféð. Atvinnurekendastéttin slær þvi tvær flugur í einu höggi, þegar hún hækkar verðlag og lækkar svo gengi krónunnar síðar meir: Hún lækkar kaup verkamanna og rýrir verðgildi skulda sinna við rík- isbankana. (Með 11% verðbólgu að meðaltali öll eftirstríðsárin, en ca. 7% vöxtum, samsvarar það árlegri afskrift skulda upp á 4%). En einn hluti atvinnurekendastéttarinnar verður fyrir barðinu á þessari verðbólgupólitík, sem verzl- unarauðvaldið stjórnar: Það eru útvegsmenn og fiskútflytjendur. Ef þeir hefðu pólitískt vit og dug, myndu þeir vinna gegn verðbólgustefnu verzlunar- auðvaldsins. En þeir ganga út frá þvi sem gefnu að eftir nokkurn tíma muni verzlunarauðvaldið verða að ganga inn á gengislækkun og „bjarga" þannig sjávarútveginum. Þvi hann er ekki aðeins undirstaða alls atvinnulifs i landinu, heldur og mjólkurkýr verzlunarauðvaldsins, sem það hefur ekki efni á að drepa. Greinilegast kemur þetta fram i því að yfirleitt er gjaldeyririnn, sem útvegurinn skapar „þjóðnýttur" handa verzlunarauðvaldinu: Útveginum gert að skila öllum gjaldeyri til bankanna, sem síðan út- hluta honum til verzlunarinnar. Það heitir „frjáls verzlun". Þegar verzlunarvaldið er búið að reka verðbólgu- pólitik sína svo glæfralega að þjóðfélagið ætlar að stöðvast vegna tapreksturs sjávarútvegsins, þá er gripið til gengislækkunar. Stundum notar yfir- stéttin hana einnig beinlínis sem svar við kaup- hækkunum verkamanna án þess að biða eftir verð- bólguhringnum (1961). Erlendis myndi hið drottnandi fjármálaauðvald ekkert tillit taka til þess að einhverjir atvinnurek- endur semdu um kauphækkun við verkamenn sína. Það yrði ekki farið að hækka almennt verðlag þessvegna eða fella pund og dollar. Þar er fjár- málaauðvald aðhald að atvinnurekendum. Þeir verða að skipuleggja atvinnurekstur sinn betur, sameina sig í stærri og betur reknar heildir, — og standa þannig sjálfir undir kauphækkununum. Þannig skapast líka framfarir i rekstri og raunveru- legar kauphækkanir. Hér á landi vantar þetta aðhald. Atvinnurekenda- stéttin hefur ekki hag af að vera það. Verkalýður- inn hefur ekki pólitískan þroska — og þar af leið- andi ekki vald til að vera það. — Sá hluti atvinnu- rekendastéttarinnar, sem hefði hag af að hindra eða 41
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.