Réttur - 01.10.1973, Blaðsíða 1
mttur
5 6. árgangur
1 973 — 4. hefti
Átókin milli fésýslustéttarinnar á islandi og íslenskrar alþýðu munu tvímæla-
laust harðna á árinu 1974. Engin þjóðhátíð getur hindrað það. Til þess er
of auðsætt að fésýslustéttin er alltaf reiðubúin að fórna jafnt hagsmunum og
rétti þjóðarinnar sem heill alþýðu til þess að viðhalda völdum sínum, gróða
og glundroða.
Það er líkast því, sem eina kjörorð yfirstéttarinnar sé: „Atlandshafsbanda-
laginu allt“. Það er líkast því, sem ekkert fái hreyft við undirlægjuhætti
hennar undir þetta gerspillta, blóði drifna árásarbandalag auðvelda heims.
Watergate-hneyksli og Víetnamblóðbað, múgmorð Nato-ríkisins Portúgal
og fasismi grískra einræðisherra — ekkert hrín á heilaþvegnu Nato-liði Is-
lands. „Lýðræði" og „vestræn menning" skal það heita, hvað svívirðilegt
sem innihaldið er.
Það er greinilegt að verklýðssamtök íslands verða sem heild að vakna á
ný til þeirrar frelsisbaráttu, er þau eitt sinn háðu, ef eitthvað verulegt á að
vinnast: Herinn að fara að fullu burt og Island að losna úr Nato. — því það
eru Nato-fjötrarnir, sem valda vopnahléinu í landhelgismálinu, — og undir-
L