Réttur


Réttur - 01.10.1973, Blaðsíða 21

Réttur - 01.10.1973, Blaðsíða 21
keppninnar. Hins vegar er hægt að vinna sér inn mikið fé umfram tímakaupið. Hið mikla vinnuálag gerir það að verkum, að fólk endist ekki lengi í slíkri vinnu, þar sést stöðugt færra roskið fólk og hvers virði er þá stundargróðinn? Það er einkennileg staðreynd, að konur skuli vinna meira slíka timamælda ákvæðisvinnu en karl- ar og að meiri nákvæmni er beitt við mælingu staðaltíma við ákvæðisvinnu þá, sem konur vinna, heldur en við ýmsa þá vinnu, sem karlar vinna í ákvæðisvinnu. Þeir vinna frekar eftir hreinu ákvæði, þ.e. greiddur er ákveðinn taxti fyrir ákveðið verk, þannig er ákvæðisvinna t.d. i byggingariðnaðinum. Utreikningar i bónuskerfinu eru nokkuð flóknir, a.m.k. skortir á, að verkafók leggi það á sig að sannprófa útreikninga. Einkennilegt var það atvik i haust, þegar upp komst í einu frystihúsinu að verkakonur, sem unnu eftir bónuskerfinu, höfðu verið hlunnfarnar í greiðslum á annað ár. Það er greinilegt að nokkuð skortir á fræðslu launafólks um launakerfi.1) 6.3 Fóstur- og kennslustörf Fósturstörf eru eingöngu unnln af konum og þvi lágt launuð, þótt menntunarkröfur séu miklar. (3 ár í Fósturskóla Islands eftir stúdentspróf, kennara- 1 Frétt i Þjóðviljanum, 1. 9. 1973. 229

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.