Réttur - 01.10.1973, Blaðsíða 6
nýtingu fiskimiða vorra oss til handa eftir
að vér höfðum stofnað lýðveldið.
En þeir, sem að þessari olíuverðs-byltingu
og þjóðnýtingu standa, eru af ýmsu undar-
lega ólíku sauðahúsi, allt frá einvaldsfurstum
afmr úr 1001 nótt yfir til næstum blóðrauðra
byltingarmanna sem þó ákallá Múhamed
frekar en Marx. Það er því afar misjafnt
hvort alþýða manna þar í löndum nýmr
nokkurs við þessa baráttu, en þó er það sum-
staðar svo. En möguleikar hennar til þess að
rísa upp og heimta sinn rétt vaxa við þessar
aðgerðir og imperíalisminn, höfuðfjandi allr-
ar alþýðu heims, veikist. Enn eru kommún-
istaflokkar bannaðir í flestum Arabalöndum,
nema Irak og Sýrlandi, en þrýstingur alþýðu
á harða barátm gegn imperíalismanum vex
í sífellu. En ríkisstjórnir og auðhringar auð-
valdslandanna sitja ekki auðum höndum. Ef
þeim þykir valdarán eða stríð of hætmlegt
að beita á svo eldfimu svæði sem olíulöðrandi
Arabalöndum, þá mun ekki skorta á hvers-
konar vélabrögð, múmr og annað, til þess
að reyna að ná samstarfi við afmrhaldssöm-
usm einvaldskónga Arabalanda svo sem
Feisal í Saudi-Arabíu. En múmr hjálpa ekki
gagnvart þessum fursmm, sem vaða nú svo
í peningum, að kauphallir Vesmr-Evrópu riða
við tilfærslu þeirra á fé. Hinsvegar reynir
auðvald Nato-landa að skírskota til kommún-
istahræðslu þessara miðaldafursta, — og
máske það vopn reynist því drýgra. En það
gerir þó málið margbrotnara að kommúnistar
og róttækur verkalýður Vesmrlanda, auk
sósíalistaríkjanna, styðja þessa uppreisn kúg-
aðra landa gegn imperíalismanum líkt og sá
afmrhaldssami Abyssiníukeisari hlaut smðn-
ing þeirra, er Mussolini réðst á land hans
forðum. — Það er ekki nýtt í veraldarsög-
unni að góður málstaður hljóti smðning
hinna ólíkustu afla, sökum mótsetninga
drottnara innbyrðis, — svo sem er einvalds-
ríkin Spánn og Frakkland studdu sökum and-
úðar á Englandi, byltingu þá, er skóp Banda-
ríkin 1776.
Það, sem gerir þá víðtæku samfylkingu
Arabaþjóðá í baráttunni við olíuhringana nú
svo harða, — þrátt fyrir nokkurn klofning í
þeirra röðum, — er stríðið við Israel. En um
það skal ei rætt frekar að sinni.
Verðbyltingin í olíunni mun hafa áhrif til
hækkunar á ýmsum öðmm hráefnum: timbri,
kopar o. fl., svo og á efni þau, sem unnin
hafa verið úr olíu (nylon, plast o. fl.), sökum
þess hve ódýr hún var. Jafnframt munu þjóð-
nýtingarráðstafanir Araba gegn olíuhringun-
um hvetja aðra hráefnaframleiðendur til eft-
irbreytni: Perú þjóðnýtir nú þegar stærsta
koparfélag landsins.
Nú mun reyna fyrir alvöru á vinnandi
stéttir Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku.
Því „velferðarríki" sem víða hefur skapast
í þessum löndum, verður ekki við haldið
nema á kostnað auðhringanna: gróða þeirra,
valds og tilvem. Auðhringarnir reyna að velta
af sér yfir á verkalýðinn afleiðingum upp-
reisnar í hráefnalöndunum: með kauplækk-
unum, atvinnuleysi og öðmm kreppufyrir-
bzrygðum. Verkalýður auðvaldslandanna og
fyrrum kúgaðar nýlenduþjóðir þurfa að taka
höndum saman og brjóta vald auðhringa
heimsins á bak aftur. — Það er það, sem vér
Islendingar berjumst fyrir að gerist í fisk-
veiðamálum vorum, — þar sem baráttan
stendur ekki hvað síst við ensk-hollenska
heimshringinn Unilever, sem næst gengur
Shell að auði af öllum einokunarhringum
utan Bandaríkjanna.4) — Þetta er það, sem
þarf að gerast á heimsmcelikvarða nú.
★
Uppreisn olíulandanna gegn auðhringa-
valdi heims, sem birtist í þessari gífurlegu
hækkun á olíu, hefur einnig áhrif til hækk-
214