Réttur


Réttur - 01.10.1973, Page 18

Réttur - 01.10.1973, Page 18
Ásmundir Sveinsson: Straukonan. Fiorence Night!ngale fékk iðjulausar millistéttar- konur og -stúlkur Viktoríutímans til líknarstarfa, .... á sama hátt og ríkar konur vinna fyrir Rauða krossinn og önnur liknarstörf nú á tímum." Starf hjúkrunarkvenna er okkur lífsnauðsyn. Það krefst allmikillar menntunar, og hjúkrunarkonur hafa með sér rótgróið stéttarfélag.1) Samt hafa þær alla tið verið meðal lægst launuðu hópa. I viðtali við nokkrar konur úr stjórn Hjúkrunarfélags Islands J) Hjúkrunarfélag Islands er eitt af elstu félögunum innan B.S.R.B., stofnað árið 1919. í 3. tölublaði Ásgarðs, blaði BSRB í des. 1969, segja þær: ...... við teljum að launakjörin í dag séu einmitt svo slæm vegna þess, að þetta var oy er kvennastétt". Þeir örfáu hjúkrunarmenn, sem lok:ð hafa hjúkrunarmenntun hér á landi hafa allir farið i sérnám (og eru því í hærri launaflokkum), men þecs ber að gæta, að þeir hafa ekki húsmóður- starf við hliðina. Undir hjúkrunarkonum starfa sjúkraliðar. Það starf krefst einnig menntunar, námskeiðs, sem tek- ur eitt ár. Þetta er þannig fagmenntað starfslið, en aðeins í 11. launaflokki (eins og sorphreinsun- armenn, næturverðir o. fl.). Það er engin tilvilj- un, að langflestir sjúkraliðar eru konur. Fyrir neðan sjúkraliðana í virðingarstiga sjúkra- hússtarfsliðsins eru síðan óbreyttar starfsstúlkur, sem enn verri kjara njóta. Yfir öllu saman tróna síðan læknarnir, karlmennirnir. Þarna halda konur við stéttaskiptingu sín á milli á sama vinnustað og sýnir það, hversu fráleitt er að skipa öllum konum saman á bekk sem einni stétt, en mörgum hættir til þess. I stéttaþjóðfélagi skiptast konur i hinar ýmsu stéttir alveg á sama hátt og karlmenn. Ljósmæður þurfa að Ijúka 2ja ára námi í Ljós- mæðraskóla Islands. Þær starfa siðan á fæðingar- deildum sjúkrahúsa, fæðingarheimilum eða ferðast um sveitirnar. Við metum líf okkar og líkama yfir- leitt mjög mikils og ekki hikum við við að borga læknum allra hæsta kaup fyrir að halda í okkur lífinu, og hið minnsta viðtal hjá lækni greiðum við háu verði. Þeir bera lika mikla ábyrgð. En eitthvað er annað hljóð í strokknum, þegar við erum að fæðast í heiminn eða þegar við konur erum að fæða börn okkar. Þá er ekki greitt háu verði eða mikil ábyrgð hátt metin. I starfsmati rík- isins er Ijósmóður raðað í 14. launaflokk, einum flokki neðar en t.d. lögregluþjónum og tollvörðum. Ábyrgð Ijósmæðra er metin til 75 stiga (sama og lögregluþjóna), en ábyrgð tollvarða er metin til 100 stiga. Til gamans má geta þess, að ábyrgð eld- ismanna laxeldisstöðva er einnig metin 75 stig. Það er þá jafn áþyrgðarmikið starf að hjálpa nýjum manni í heiminn og að halda lífinu í laxaseiðum handa sportveiðimönnum. Mesta ábyrgð eru þeir greinilega taldir hafa, sem hafa peninga undir höndum. Viðskiptalífinu er skipað í hæstan sess. Sölustjóri minjagripaverslana Ferðaskrifstofu rik- isins fær 100 stig í ábyrgð, auglýsingastjórar út- varps 130 stig og útsölustjórar Áfengis- og tóbaks- verslunar ríkisins 160 stig. 226

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.