Réttur


Réttur - 01.10.1973, Síða 31

Réttur - 01.10.1973, Síða 31
ið við þeirra þarfir og meðan þjóðfélagið er ekki þyggt upp með almenna atvinnuþátttöku kvenna fyrir augum. Við þurfum að viðurkenna staðreyndir um mismun kynjanna, öllum konum þarf að tryggja fri á fullum launum i þrjá til sex mánuði í kringum barnsburð, og e.t.v. vinnuafslátt í einhvern tíma að auki. Aðbúnaður við fæðingu þarf að vera eins góður og kostur er. Eigi konur I erfiðleikum i sambandi við tíðir, verður að taka fullt tillit til þess, meðan læknavísindin hafa ekki fundið upp meðul við þeim lasleika. Koma þarf upp dagvistunarheimilum fyrir öll börn undir skólaskyldualdri, sem rekin væru á sama hátt og skólar, bæði i borg og til sveita. En þetta þurfa að vera GÓÐ heimili, sem veita eiga börnum þroskavænlegt og félagslegt uppeldi. Vanda þarf mjög vel til menntunar starfsfólks. Börn þrifast ekki vel á slæmum stofnunum, frekar en slæmum he.milum. Miða ætti reksturinn einnig við fólk í vaktavinnu. Það er ekki þar með sagt, að þarna skuli börnin dvelja allan daginn. Daglegur dvalartími ætti ekki að fara yf;r 7 eða 8 stundir. Jafnframt því sem konur fara almennt að taka þátt I atvinnulífinu og vélvæðing eykst ætti að vera hægt og er nauðsynlegt að stytta vinnutímann. Vinnutími foreldra þarf ekki að vera á sama tíma og þannig gæti dvölin á dagheimilinu styst. Jafn- hliða þarf að koma upp þjónustukerfi með fólki, sem vinnur við að hjúkra og sinna veikum börnum á heimilunum, meðan foreldrarnir eru í vinnu.2) Lítil von er til svo almennrar uppbyggingar dag- heimila I kapítalisku þjóðfélagi, þar er slíkum heim- ilum ekki komið upp nema í neyð, t.d. handa börnum einstæðra mæðra, það er ódýrara en að sjá fyrir þeim, eða ef starfskraft vantar tilfinnanlega til vissra starfa eins og hjúkrunarstarfa eða íshús- vinnu. Viðhorf til heimilisstarfa þurfa að gjörbreytast. Astandið er enn svo slæmt hjá okkur að jafnvel skerfur reiknaður likt og orlofs- og lífeyrissjóðs- greiðslur, þ.e. af dagvinnukaupi.Ekki náðist sam- staða um þetta atriði í verkakvennahópnum. Þá var málið aftur flutt á ráðstefnunni sjálfri, en fékk ekki inni í sameiginlegum sérkröfum Verka- mannasambandsins. ') Félag einstæðra foreldra hefur gert tilraun I þessa átt. I tilefni af auglýsingu gáfu sig fram nokkrir öryrkjar til þessara starfa. karlmenn, sem berjast fyrir sósíalisma, þar sem allir einstaklingar njóti sama réttar, lita á það sem sjálfsagðan hlut, að hússtörf á þeirra heimili og uppeldi barna þeirra sé hlutverk konunnar einnar, jafnvel þótt hún vinni fullt starf utan heimilis. Mundi viðhorf þeirra breytast sjálfkrafa með tilkomu sósi- alismans? Konur sjá ekki frelsun sína I vinnu utan heimil- isins, ef henni fylgir að þurfa að fara eldsnemma á fætur á hverjum morgni til að koma syfjuðum börnum I gæslu eða skóla, vinna síðan við vél eða skrifborð í a. m. k. átta stundir, þjóta á barna- heimilið fyrir ákveðinn tima og vinna ein öll heim- ilisstörfin, þegar heim kemur. Ekki er óeðlilegt, að konur sækist eftir hálfs dags vinnu, en hún er engin lausn, heldur hefur fremur stuðlað að bágum og versnandi kjörum kvenna og leysir konur alls ekki undan klafa heimilisstarfanna. Aftur á móti græðir vinnuveitandinn á slíku fyrirkomulagi og borgarinn sér þarna ráð til að hleypa konum út af heimilunum án þess að það krefjist þess að karl- menn breyti lífshéttum slnum. Launamisrétti kvenna hefur þegar verið gerð nokkur skil í þessari grein. Konur verða að knýja á verkalýðsforystuna um að taka þau mál alvar- legum tökum. Af einhverjum ástæðum hefur hún ekki lagt sig fram um að fá þessu breytt, en hún er eini aðilinn, sem á þvi hefur tök. Vert er að geta þess, að kauptrygging, sem nú er í kröfum ASl, mun einkum koma konum til góða. I fiskiðnað- inum mun kauptrygging að likindum leiða til þess að betra skipulag verður á veiðum og dreifingu fiskjarins. Atvinnurekendur munu sjá sér hag I að hafa vinnuna sem jafnasta. Konur á hinum ýmsu vinnustöðum þurfa að binda endi á samtakaleysi sitt. Þær þurfa að beita sér fyrir því að uppfræða hver aðra og karlmennina um stöðu konunnar. Þær þurfa að kynna sér launa- samninga og allar hliðar kjarabaráttunnar og koma siðan út í launabaráttuna sem sterkur og áhrifa- mikill hópur. Stór hópur kvenna virðist sætta sig við rikjandi ástand, en það bendir einmitt til þess, að þær geri sér alls ekki grein fyrir því, að þær eru beittar misrétti. Nýstofnað jafnlaunaráð á að verða þe!m vopn i baráttunni fyrir jöfnum rétti til allrar vinnu og jöfnum launum fyrir jafnverðmæt störf:1) meðan takmarkið um jöfn laun handa öllum er svo fjarlægt. a) Lög um jafnlaunaráð nr. 37,1973. 239

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.