Réttur


Réttur - 01.10.1973, Side 47

Réttur - 01.10.1973, Side 47
INNLEND VÍÐSJÁ njrd BS R B Um miðjan desember náðist samkomulag milli BSRB og ríkisins um kaup og kjör ríkisstarfsmanna frá 1. janúar 1974. Málið fór ekki til kjaradóms. Talið er að úrslit samninganna við ríkisstarfsmenn muni hafa áhrif á heildarkjarasamningana við Alþýðu- samband Islands. Þar hefur þó ekki gengið né rekið enn; atvinnurekendur hafa neitað að hreyfa sig hið minnsta og olíukreppan hefur óneitanlega þegar haft áhrif á viðhorf manna. Er talið að olíuhækkunin á næsta ári muni nema um 3000 miljónum króna á árs- grundvelli. BSRB markaði á þingi sínu á miðju ári þá stefnu að freista þess að fá sérstakar hækkanir handa þeim lægstlaunuðu. Sam- kvæmt þeirri stefnu varð og niðurstaða kjara- samninganna. Ofaglærðir starfsmenn í lægsm launaflokkunum fá sérstaka hækkun sem aðrir fá ekki. Kauphækkunin í lægstu launa- flokkunum nam 18-*-25% að viðbættum rúmlega 6% hækkunum á samningstímabil- inu. Á sama tíma fá aðrir starfshópar innan BSRB 3—7 % hækkun strax, en rúmlega 6% á samningstímabilinu. „Þetta er stærsta skref sem við höfum stigið til jöfnunar á launum", sagði Haraldur Steinþórsson, vara- formaður og framkvæmdastjóri BSRB í við- tali við Þjóðviljann eftir samningana. Samningur BSRB og ríkisins er ramma- samningur sem einstök aðildarfélög ganga síðan endanlega frá. Samningurinn gildir til 30. júní 1976. Samkvæmt honum eru laun í neðsta launa- flokki 29.271 kr. — 35.661 kr. á mánuði, en í hæsta launaflokki 103.122 kr. á mánuði. SAMIÐ VIÐ BRETA Samningar við Breta hafa nú verið gerðir; samningsuppkastið var samþykkt á Alþingi með 54 atkvæðum gegn 6. Allur þingflokk- ur Alþýðubandalagsins stóð að samnings- gerðinni við Breta eftir samhljóða samþykkt miðstjórnar flokksins. Islenskir sósíalistar stóðu frammi fyrir eftirfarandi staðreyndum: 1. Að í samningsuppkastinu fólst viður- kenning Breta á forræði Islendinga yfir haf- svæðinu út að 50 mílum. Bretar hefðu aldrei farið að semja við Islendinga um veiðar á þessu svæði ef þeir hefðu talið það alþjóðlegt hafsvæði. 2. Að túlkun forsætisráðhera á lögsöguat- riði samningsuppkastsins var ótvírætt á þann veg að Islendingar hefðu úrskurðarvald um brotlega togara. (Sjá samningsuppkastið í Rétti 3. hefti bls. 207—208). Þessi túlkun Ölafs Jóhannesonar hefur síðan reynst stand- ast í framkvæmdinni og hefur einn togari verið strikaður út af leyfalistanum, þegar þetta er skriíað. 3. Að forsætisráðherra lýsti því yfir að hann myndi segja af sér ef samningstilboðið yrði ekki samþykkt. Þannig reyndust tillög- urnar um samninga við Breta í rauninni úr- slitakostir. 255

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.