Réttur


Réttur - 01.10.1973, Page 52

Réttur - 01.10.1973, Page 52
RITSJÁ Dag Hareide: Chile. Pá vej til socialismen. Pax-úgáfan. Oslo 1973. Hér er á ferðinni 200 blaðsiðna kilja frá Pax-útgáfunni norsku, sem hefur inni að halda allmargar merkilegar greinar norskra sósíal- ista, sem verið hafa í Chile. Er þar að finna allýtarlegar rannsóknir á þjóðfélags-háttum og -aðstæðum, stjórnmálaástandi, sérstaklega í sósíalistisku verklýðshreyfingunni, og afstöðu atvinnulífs j Chile gagnvart erlendu auðmagni. I for- mála er lögð sérstök áhersla á hverja lærdóma norskir sósíalistar verði að draga af baráttunni í Chile, sem um margt sé líkt Nor- egi og öðrum löndum Vestur- Evrópu, en ólíkt öðrum ríkjum Suður-Ameríku. Bókin er skrifuð fyrir valdarán fasista 11. septem- ber, en er ekki síður athyglisverð þessvegna, því erfiðleikar alþýðu- stjórnarinnar eru þar vel raktir og skýrðir. Meðal greinakaflanna eru mjög merkilegar upplýsingar um framkomu hins alræmda alþjóða- hrings ITT (International Telephone and Telegraph Co.). Eru það af- hjúpanir hins kunna blaðamanns Jack Anderson, sem hér eru birtar. Þessi bók á erindi til allra hugs- andi manna. Jozsef Lengyel: Confrontation. Peter Owen. London. 1973. ,,Réttur'‘ birti 1969 smásögu eftir Jozsef Lengyel, einn besta rithöf- und Ungverja, og var þá sagt nokkuð frá þessu stórmerka skáldi og ágæta kommúnista, sem varð fyrir þeirri ægilegu reynslu að vera 18 ár í fangabúðum Sovétrikj- anna, sendurþangað saklaus 1937. Þessi skáldsaga hans:: „Augliti til auglits", fjallar um eitt djúp- stæðasta, viðkvæmasta og harm- þrungnasta vandamál I marxistiskri hreyfingu nútímans — og Lengyel fjallar um það af persónulegri reynslu, sárri og djúpri, en með list stórskáldsins og innsýni hins menntaða marxista í vandamálið. Efnið er að ungverski kommún- istinn Lassú, sem sleppt er 1948 úr fangabúðum I Síberíu, stelst inn til Moskvu, til að hitta þar vin sinn og félaga Banicsa, sem nú er fyrsti sendiráðsritari í ungverska sendiráðinu. Þeir höfðu unnið sam- an sem bestu félagar, Lassú hærra settur I flokknum, báðir haft leyni- starf með höndum I Ungverjalandi fasismans, — en Banicsa síðan lent í fangabúðum nasista, Lassú I fangabúðum Sovétrikjanna. Lýs- ingin á samtali þelrra og viðbrögð- um öllum, umhverfi beggja, konu og syni 1. ritara er I senn list I lýslngu á sálarlífi, áhrifum um- hverfis á manninn, og djúpstæð félagsleg gagnrýni á fyrirbrigðum í sósíalískum þjóðfélögum eins og þau eru enn. Það eru tveir komm- únistar, sem ræða málin frá svo ólíkum persónulegum aðstæðum, sem hugsast getur. Og Lengyel getur skrifað um þessi vandamál sem sá, er hefur vitið og reynsl- una — og vald listarinnar til þess. „Valdið er krabbamein .. . Það étur hinar lifandi sellur I mann- gildi hverrar manneskju. Takmark- Ið verður að engu í augum manns- ins — og valdi er beitt aðeins valdsins vegna", segir Lassú á einum stað í samtallnu við Banicsa. Og á öðrum stað segir hann í einskonar eintali sálarinnar, út af gömlu vandamáli, sem hann er að brjóta heilann um og snertir kjarnann í allri baráttunni: „Ég hefði verið hræddur við að trúa ekki, — ég var hræddur við að glata inntaki lífs mins, þeim til- gangi, sem ég var eigi aðeins reiðubúinn að lifa fyrir, heldur og að deyja fyrir". Lengyel á sem maður og skáld miklar þakkir marxista og allrar alþýðu skildar fyrir það að halda áfram á svo listrænan og djúp- stæðan hátt þeim reikningsskilum kommúnista við ríkisvald sjálfra sín, sem hafin voru 1956, en víða var lagst á síðan. Þótt Lengyel sé mikils metinn I föðurlandi sínu, þá eru slíkar bækur hans sem þessi litin hornauga I ýmsum af sósíal- istisku löndunum. En gildi þeirra fyrir alla þá, sem brjóta vilja til mergjar erfiðustu innrl viðfangs- efni sósíalismans, er því meira. 260

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.