Réttur


Réttur - 01.10.1979, Side 8

Réttur - 01.10.1979, Side 8
í upphafi helmingur iðnaðar iieimsins og útflutningurinn þriðjungur. Síðan hefur dollarinn alltaf verið að falla í verði gagnvart gulli — þessum „almáttuga“ málmi manna í auðvalds- heiminum. Þegar Bandaríkin hófu sölu á gullforða sínum 1975 var „unsan“ (1/12 úr pundi) af gulli seld á 165 dollara, sem þá var ferfallt verð hins skráða verðs. (Dollar- inn mun þá áður hafa verið metinn ná- lægt 35 ,,unsum“) Árið 1978 fór gull- „unsan“ á uppboði á Bandaríkjamarkaði á 171 dollar. Allar tilraunir til að festa gengi dollarans með gullsölunni mis- heppnuðust gersamlega. — Og nú nýlega fór jafnvel gull-„unsan“ á hinum „frjálsa“ braskmarkaði í Evrópu yfir 500 og síðan 600 dollara. — Traustið á doll- amum var brostið hjá bröskurum auð- valdsins í Evrópu. Gullverðið hafði meir en tífaldast á hinum „frjálsa“ markaði frá því einok- unaraðstaða Bandaríkjaauðvaldsins hrundi. Og það hrundi meira af valdakerfi auð- valdsins í heiminum. Mikill hluti af gróða þess byggðist á valdinu yfir nýlendunum og auðlindum þeirra og byggist enn. Pólitíska valdið hjá stórveldum Evrópu og Ameríku yfir nýlendunum tók að bresta upp úr 1960 og efnahagsvaldið nokkru síðar. Mest áberandi varð þetta í olíulönd- unum, sem olíuhringar Bandaríkjanna og Bretlands höfðu ausið af og safnað gríðarlegum gróða. Olíufurstar Araba tóku nú valdið yfir þessum auðlindum í sínar hendur, gerðu samkomulag við olíu- hringina um að margfalda verðið, — sem kom báðum vel, — enda hafa olíuhring- ar Bandaríkjanna („systurnar sjö“) aldrei grætt eins og nú. Þær „tröllskessur" sjö eru í „vanheilögu" bandalagi við Araba- furstana um að láta Bandaríkjamenn og aðrar þjóðir, borga. Olíuverðið var þre- faldað 1973 ogaftur stórhækkaðnú. Olíu- furstarnir segja: Við erum að vinna inn verðfallið á dollarnum — og ætli það láti ekki nærri að olíuverðið hafi fylgt í humátt á eftir gullverðinu? Almenning- ur fær að borga, en olíufurstar Araba- landa og Bandaríkjanna stórgræða. Og á þessum áratug sem nú er senn á enda (— líklega þó ekki fyrr en eftir eitt ár!) hefur hernaðarvald Bandaríkjanna líka minnkað þrátt fyrir vitskertan víg- búnað, vopnahringunum til stórgróða. Bandaríkin töpuðu árásarstríði sínu á smáþjóðina í Víetnam og urðu að flýja þaðan 1973. Og þora nú ekki einu sinni að bæla niður uppreisn við bæjardymar hjá sér, þegar þjóð Nicaragua steypti áratuga-lepp þeirra og blóðugum böðli, Somoza, í uppreisn. Og efnahagssérfræðingar auðvalds- heimsins spá litlum sem engum hagvexti 1980, vaxandi atvinnuleysi o.s.frv. á sama tíma eykur svo auðvald þessara landa víg- búnaðinn og ætlast til þess að alþýða landanna sætti sig við versnandi lífskjör til að halda uppi vitskertum vígbúnaði og vaxandi gróða voldugustu auðhring- anna. Það er því ljóst hvert stefnir á þessari öld, sem amerískir oflátungar eitt sinn ætluðu að gera „amerísku öldina“. En hitt verða menn að muna, að auðvalds- ríki heimsins em enn sterk og rík. Vald þeirra hrynur aðeins hægt og sígandi og þá fyrst fyrir alvöru, þegar verkalýður 208

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.