Réttur


Réttur - 01.10.1979, Side 23

Réttur - 01.10.1979, Side 23
Sólveio Einarsdóttir: O GISELE HALIMI í hinum fornu nýlendum evrópskra stór- velda er enn háð hörð og oft hetjuleg bar- átta fyrir mannréttindum, ekki síst rétt- indum kvenna. Hér er frásögn af einni kvenhetju, Giselu Halimi sem helgað hef- ur starf sitt þeirri mannréttindabaráttu og á oft í höggi við franska dómstóla þess vegna. Gisele Halimi er al: fátæku fólki í Túnis. I tvær vikur neitaði faðir hennar að við- urkenna að eiginkona hans hefði fætt stúlkubarn. í æsku stóð hún í eilífri Ijar- áttu gegn því að þjóna bræðrum sínum og skammast sín vegna kynferðis síns. Hún varð að berjast fyrir rétti sínum til náms. 19 ára gömul var framtíð hennar í veði þar eð hún varð ófrísk því enginn hafði frætt liana um líkama liennar. Skottulæknir fjarlægði fóstrið á eldlnis- borði og hinn ungi spítalalæknir sem að lokum hjálpaði henni, gerði það án deyf- ingar. Hann sagði: „Þá getum við verið vissir um að þú gerir þetta ekki aftur.“ í dag er Gisele Halimi 51 árs, frægur lögfræðingur í Frakklandi og einn besti málllytjandi landsins. En hrin tekur ekki að sér mál sem veita frægð og auð. Hún hefur tekið málstað þeiiTa sem minna mega sín. Hefur fært óvinsæl vandamál svo sem pyntingar franskra hermanna í nýlendunum, nauðganir og fóstureyðing- ar inn í franska réttarsali. Hrin hefur neytt svartklædda dómara til að hlusta á lýsingar á fóstrum, blóði og sæði; frætt þá tilneydda um heim konunnar. Kyn- ferðislegt ofbeldi gagnvart konum hefur flokkast með smámálum eins og hjóla- stuldi. Þetta vildi Gisele ekki sætta sig við. Ásanrt Sirnone de Beauvoir og Jean Rostand (nreðlimur frönsku akademí- unnar) átti hún frumkvæði að stofnun „Choisir“ hreyfingarinnar skömmu eftir 1970. Franskar konur senr verða fyrir ofbeldi, óska allar eftir að Gisele verji 223

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.