Réttur - 01.10.1979, Qupperneq 46
bróðurhugur sigri svo hjá vinnandi stétt-
um heims og þar með sósíalistum allra
flokka, er telja það stefna sína, að takast
megi að stöðva helþróun heims, og eyði-
leggja þær vítisvélar, er ógna nú tilveru
alls mannkyns, — einmitt þegar mögu-
leikarnir til að útrýma allri fátækt, kúg-
un, vanþekkingu og sjúkdómum hjá öll-
um þjóðum jarðar blasa við í fyrsta skipti
í sögu mannkynsins sakir þess vísinda-
og tæknistigs, sem aðeins bíður bróður-
handar mannkynsins til þess að verða því
til blessunar en ekki tortímingar. Hver
þjóð mun hafa sinn hátt á hvemig hún
útrýmir því aldalanga böli, — en hún á
rétt á að búast við umburðarlyndi frá
þeim sem betur mega, eru stærri, vold-
ugri og ríkari af náttúrunnar- og jarðar-
innar gæðum.
Þannig þarf alþjóðahyggja sósíalism-
ans að birtast í raun, er sigurinn er unn-
inn og mannkyninu forðað frá fjörtjóni
því, sem skefjalaus gróðaöfl auðvalds
stefna nú að blind í forhertu ofstæki
sínu.
Ríkisvaldið í höndum kommúnista-
flokkanna í sósíalistisku ríkjunum er
ekki aðeins forsenda ægilega fórnfrekra
sigra í viðureigninni við fasisma og auð-
vald, — skilyrði sigurgöngu sósíalismans
í heiminum. Ríkisvaldsskeið sósíalism-
ans — eins og ríkisvald yfirstéttanna áður
— býr yfir öllum freistingum embættis-
hroka, metnaðargirndar og misnotkunar
valds, — einnig glæpa, eins og reynsla
síðustu hálfrar aldar hefur sýnt.
Þessar torfærur á leiðinni til komm-
únismans, — oft hrikalegar og óguvekj-
andi — verðum við að yfirstíga, læra það
m.a. al þeirn mistökum, sem þegar hafa
verið gerð.
Það er hollt að minnast vísuorða
Brechts í því sambandi um kommúnism-
ann:
„Hann er hið einfalda
sem torvelt er að framkvæma.“°
SKÝRINGAR:
1) Um lí£ Liú er hér aðallega stuðst við 1) Edgar
Snow: „Red China today“ 1970 og 2) Der Spiegel
2. apríl 1979 og þaðan er myndin a£ þeim hjón-
uin tekin (bls. 152).
2) Um Ho Lung er aðalheimildin: Edgar Snow:
Red Star over China“ 1944 og „Peking Review"
7. sept. 1979, bls. 8-12.
3) Um þessa þrjá má lesa minningargreinar í „Rétti"
197ö, auk alls annars, sem um þá hefur verið
skrifað á íslensku.
4) Um vandamál ríkisvalds í sósíalisma hefur oft
verið ritað í „Rétti", einna ýtarlegast í greininni
„Hvert skal stefna" 1957, bls. 29-41.
5) í „Úrvalsrit Marx og Engels“ hjá Heimskringlu
1968, II. bindi, bls. 119.
6) Mjá Brecht í „Lob des Kommunismus" og eru
þessar síðustu línur svo á þýskunni:
„Er ist das Einfaclie
Das schwer zu machen ist."
Hér er noluð þýðing Erlings E. Halldórssonar 1
„Rélti" 1975, bls. 95.
E. ().
246