Réttur - 01.10.1979, Page 50
SARA LIDMAN
fær bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Það var mikill og ánægjulegur viðburður er Norðurlandaráð veitti nú Söru Lidman bók-
menntaverðlaun, fyrst og fremst fyrir annan hlutann í sögu hennar af lífi alþýðunnar í
Norður-Svíþjóð, „Börn reiðinnar". Sú mikla og snjalla baráttukona alþýðunnar var vel
að þeim verðlaunum komin og heiður fyrir Norðurlandaráð að fá að veita slíkri hetju
lífsbaráttunnar sem Söru verðlaun sín.
Alin upp sjálí í Norður-Svíþjóð, hó£ Sara
snemma að rita um kjör verkalýðsins og
lífsbaráttu og varð síðar með skáldskap
sínum virkur þátttakandi í frelsisbaráttu
námumannanna í Kiruna. Bók hennar
„Gruva“ (Náman) með ljósmyndum Odd
Uhrbom af lífi námumannanna varð ó-
beinlínis hvatning til hinnar hetjulegu
verkfallsbaráttu námumannanna - verk-
fall þeirra stóð í 57 daga um áramótin
1969-70. Og hún lét sér ekki nægja skáld-
skapinn. I ótal blaðagreinunr barðist hún
fyrir málstað þeirra, þegar mest lá við. -
Bók hennar, leikritið „Marta, Marta, en
folkesaga“, er helgað sömu vandamálun-
um, vopn í sömu baráttunni. Og aftur-
haldið sænska liataði hana eðlilega.
En Sara I.idman var ekki bundin við
250