Réttur - 01.10.1979, Síða 54
atkvæða hjá þjóðinni: „Lýðræðisbanda-
lagið“, eins og þeir kölluðu sig, fékk
2.661.551 atkvæði. Hins vegar fengu
vinstri flokkarnir (SP., KP. og UDP) sam-
tals 2.890.999 atkvæði.
SP (sósíaldemokratar) tapaði 277.608
atkvæðum, samanborið við kosningarnar
í apríl 1976, en misstu við það 34 þing-
sæti. En APU (einskonar Alj^ýðubanda-
lag KP (kommúnistaflokksins) og MDP
(„lýðræðishreyfing Portúgals) bætti við
sig alls 328.000 atkvæðum, en fékk út á
Jrað aðeins 7 ný þingsæti. — Kjördæma-
skipulaginu er því ýmislegt ábótavant í
Portúgal.
Það er líklegt að sú afturhaldsstjórn
sem nú verður mynduð í Portúgal knýi
sósíaldemókrata og kommúnista til ná-
innar samvinnu, því þeim mun báðum
Ijóst, að jrað lýðræði sem skapað var með
byltingunni 1974 er nú í hættu, ef verka-
lýðsflokkarnir bera ekki gæfu til sam-
starfs.
Japan
Kommúnistaflokkur Japans, sem eftir
kosningarnar 1976 hafði aðeins 17 þing-
sæti vann mikinn kosningasigur í þing-
kosningunum í október 1979: Flokkur-
inn fékk 39 jnngsæti í fulltrúadeildinni
og framfaraflokkur, sem starfar með hon-
um, 2 sæti. Auk þess hefur kommúnista-
flokkurinn 16 fulltrúa í efri deild, sem sé
alls 57 fulltrúa á þingi.
Atkvæðafjöldi ílokksins var 5.8 millj-
ónir af 54.5 milljónum atkvæða. Flokks-
félagar eru 420 þúsund, en lesendur
flokksblaðsins „Akahata" um 3 milljónir.
Hefur þeim fjölgað mjög mikið.
I fulltrúadeild þingsins í Japan em alls
51 1 Jringmenn.
254
Mexico
Loksins fékk verkalýðurinn í Mexico
joau mannréttindi fyrir ári síðan að rót-
tækasti flokkur þjóðarinnar, Kommún-
istaflokkur Mexico, væri lögleyfður og
mætti bjóða fram til Jrings — eftir að vera
bannaður í 33 ár.
Þann 1. júlí 1979 fóru fram kosningar
til fulltrúadeildarinnar og varð Komm-
únistaflokkurinn jrriðji stærsti flokkur
landsins — af sjö alls - og fékk 18 þing-
sæti.
Indonesía — morðríkið
Fasistastjórnin í Indonesíu - góður
vinur CIA og Bandaríkjastjórnar - hefur
síðan hún braust til valda 1965 látið
myrða meir en eina milljóna kommún-
ista og annarra róttækra manna. — Fjöl-
miðlar hér þegja þunnu hljóði.
Þessir fasistar réðust fyrir fjórum árum
á Austur-Timor, sem áður var nýlenda
Portúgala. Fasistarnir hafa nú myrt Jxir
ylir 100 jjúsund manns — og reyna að
loka landinu sem mest. — Það hefur ekki
heyrst hingað eitt orð frá þeim hákristna
Carter gegn innrás þessari og múgmorð-
um. Eru það máske vinir hans, sem morð-
in fremja - og réttir menn drepnir,
„bara“ alþýða.
Þeir, sem gegn morðstjórn fastistáiþna
berjast, eru í Indonesíu jjeir kommúnist-
ar, sem eftir Iifa og við bætast - en á
Austur-Timor þjóðfrelsisflokkurinn Fre-
tilin.