Réttur - 01.10.1979, Page 56
NEISTAR
Aminningarorð til þeirra
- á aldarártíð Jóns Sigurðs-
sonar - er svíkja land og
selja vilja undir yfirráð út-
lendra.
- og eggjunarorð til ann-
arra!
Eigi sé hægt að reiða sig á
embættismennina, „síst þá, sem
eru í æðri stöðum. Þeir álíta sig
selda og eru það.“.......
„Þeir eru góðir að vaka yfir
anncienniteti sjálfra sín, en ekki
yfir réttindum þjóðarinnar."
„Mér finnst nú alt benda til
þess, að alþýðan á íslandi sé það
eina sem megi fá vit úr, og kenna
vit.......
Jón Sigurðsson forseti í bréfi til
Gisla Hjálmarssonar 6. sept. 1856.
—x—
„Þeir sjáljir, sem bregðast þér
selja þig beint,
í sigurför ganga’, en — þora
aðeins leynt,
á leiði þíns mesta manns, —
þeir krýna, jreir tigna
Jón Sigurðsson,
vorn sóma og skærustu frelsisins
von,
en — mölva svo merkisstöng
hansl
Guðmundur Guðmundsson
Ur „Til íslensku þjóðarinnar."
,.l>að reis upp sú manndáð í
þjóðinni um þig,
sem Jróttist of rík til að sníkja;
oss hnykti Jtá við, er hún vopnaði
sig
og varð ekki keypt til að svíkja.
Og Javí er það ástfólgnust hátíðin
hjer,
er hundraðasta afmælið skín yfir
þjer
og flokknum sem vildi’ ekki víkja.”
Þorsteinn Erlingsson í
„Fyrir minni Jóns Sigurðssonar“
á aldarafmæli lians 17. júní 1911.
—x—
„Hér bjó afi og amma
eins og pabbi og mamma.
Eina ævi og skamma
eignast hver um sig,
— stundum þröngan stig.
En ]rú átt að muna,
alla tilveruna,
að þetta land á þig.
Ef að illar vættir
iim um myrkragættir
bjóða svika sættir,
svo sem löngum bcr
við 1 heimi hér,
þá er ei þörf að velja:
l>ú mátt aldrei selja
það úr hendi þér."
Guðmundur Böðvarsson:
úr „Fylgd".
—x—
Hermdu mér Þjóðunn
Þjóðansdóttir,
vísust af völum:
ætlarðu að lifa alla tíð
ambátt í feigðarsölum
á blóðkrónum einum
og betlidölum?
Jóhannes úr Kötlum:
úr „Sóleyjarkvæði” 1962.
—x—
Hvort sem krýnist þessi ]>jóð
þyrnum eða rósum,
hennar sögur, hennar Ijóð,
hennar líf vér kjósum.
Ein á hörpu íss og báls
aldaslag síns guðamáls
æ hún leiki ung og frjáls
undir norðurljósum.
Jóhannes úr Kötlum:
úr „íslendingaljóði” 1944.
—x—
Arnas Arnæus við Jón Hregg-
viðsson:
„Þú getur sagt þeim frá mér að
ísland hafi ekki verið selt, ekki í
þetta sinn. Þeir skilja það seinna."
Hulldór Laxness:
í „íslandsklukkunni".
—x—
1851—1951
„Sá hinn mikli íslendingur, fs-
lendingurinn sem mælti hin frægu
orð: „Vér mótmælum," hann rit-
aði og á sinn skjöld: „Eigi víkja."
Eru þeir til meðal vor í dag, sem
vilja víkja? Ég segi ykkur, að hver
sá, senr víkur, hann svíkur. Hann
er svikari við þjóð sína, menningu
hennar, sjálfan sig. Allir, allir
undanlckningarlaust, eigum vér að
mótmæla, mótmæla erlendri kúg-
un, mótmæla innlendum lögbrot-
um, mótmæla því auðvaldi, sem
býður alþýðu manna áþján, kúgun
og hungur. Mótmælum allir sem
einnl Vér mótmælum allirl"
Sigjiís Sigurhjartarson:
í ræðu á útiíundi Sósíalista-
flokksins 16. maí 1951, gegn
hernaðarinnrás Bandarikjahers
á ísland 7. maí 1951.
256