Réttur


Réttur - 01.04.1981, Side 35

Réttur - 01.04.1981, Side 35
Evrópa fangelsi, er nasistar réðu, var hugsjónin! uðu svo nasistarnir að ná tökunum á Araba- löndunum og íran og allri olíu þeirra. Norðurlöndin áttu heldur ekki að sleppa. 1943 átti tvisvar um sumarið að ráðast inn í Svíþjóð. Hitler mælti svo fyrir:,,Norðmerw, Svía, Dani og Hollendinga sendum við á austursvœðin”. Traustið á alþýðu Sovétríkjanna eflir mótspyrnuhreyfingar En það kvað ekki alstaðar við sama tón og í forustu nasista og hjá afturhaldssömustu auðvaldsseggjum. Út um alla Evrópu, fyrst og fremst í Júgó- slavíu en síðar víðar og víðar, óx mótspyrna gegn herjum nasista. Skæruhernaður og hverskonar skemmdarverk á herstöðvum og samgöngulínum þýska hersins blossuðu upp í hverju landinu á fætur öðru. Ótrúleg hetju- verk voru unnin af þeim nafnlausa her her- námsandstæðinga, sem varð æ sterkari er sýnt var að rauði herinn tók að stöðva nas- istasóknina og snúa örlagataflinu við. Við fangarnir þrír úr ritstjórn Þjóðviljans vorum um þær mundir, er árás nasista á Sovétríkin hófst, í Brixton-fangelsi í London. Við skrifuðum strax til Maisky, ambassadors Sovétríkjanna í Bretlandi, til þess að láta í ljósi óskir okkar um sigur Sovét- ríkjanna á nasismanum og traust okkar á mætti þeirra til að vinna það stórvirki. Okkur barst bréf frá Maisky í fangelsið, þar sem hann þakkaði fyrir það traust og góðar óskir í garð Sovétþjóðanna á þessari hættustund. Milljónir andfasista munu hafa hugsað á sama hátt og við — og látið vonir sínar í ljósi með æ harðari baráttu — oftast með lífið að veði. Sovétríkin ráða niðurlögum nasismans Það fór á annan veg í stórfelldustu styrj- aldarátökum sögunnaren afturhald heimsins hugði. Allir heimsveldisdraumar þýska auðvalds- ins og nasistaleiðtoga þess hrundu sakir mót- spyrnu og hetjuskapar sovésku alþýðunnar. Brjálæðiskennd stórmennska nasistisku leið- toganna hjaðnaði frammi fyrir þrautseigju vígreifs verkalýðs og annars vinnandi fólks, er barðist fyrir lífi sínu um ættjörð sína. Leningrad — Moskva — Stalingrad stóð- ust allar vígvélar þýsku miljónaherjanna. Sovétríkin sigruðu, lögðu nasismann að velli, björguðu Evrópu frá yfirdrottnun ægi- legasta valdaskrímslis veraldarsögunnar. 99

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.