Réttur - 01.04.1981, Page 41
sem tölvutæknin tekur á sig og hugsanlegar
afleiðingar, sem rekja rná til hennar eru póli-
tískar ákvarðanir og félagslegar gerðir.
Tölvutækni í þágu lýðræðis og
almannaheilja
Tölvutæknin liefur upp á margt að bjóða.
En forsendur þess að tölvur verði tæki í þágu
lýðræðis og almannaheilla er að fjöldasam-
tök eins og verkalýðsfélögin fái afgerandi
hlutverk í hönnun tölvukerfa og aðlögun
tölvutækninnar.
Fækkun atvinnutækifæra vegna nýrrar
tækni er ekkert nýtt fyrirbæri. Alla tuttustu
öldina hefur atvinnutækifærum fækkað í
landbúnaði. Fjölgun atvinnutækifæra í iðn-
aði á fimmta og sjötta áratugnum var ekki
eins hröð og menn höfðu vænst. Vinnumála-
stofnun Englands skýrði frá því á sínum tíma
að á árunum 1957—1964 hefði verkfærum
mönnunr fjölgað urn 4 milljónir þar í landi.
En vegna aukinnar sjálfvirkni og meiri fram-
leiðni með færri starfsmönnum, þá gat iðn-
aðurinn aðeins tekið við 5% nýja vinnuafls-
ins. Vænlegur hagvöxtur fimnrta og sjötta
áratugarins og pólitískar ákvarðanir gerðu
kleyft að leysa atvinnuleysisvandamálið, sem
annars hefði orðið, nreð því að til opinberra
aðila voru ráðin 45% þessara fjögurra millj-
óna, sem bættust við verkfæran fjölda.
Tölvutæknin mun gera kleift að framleiða
enn meira magn af sumum iðnaðarvarningi
með færri starfsmönnum en áður hefur
þekkst. En vegna óhagstæðari hagvaxtar og
vegna þess hvar tölvutæknin hentar verður
sennilega ekki hægt að ráða fram úr atvinnu-
leysisvandamálum hennar með sömu brögð-
um og notuð voru á fimmta, sjötta og sjö-
unda áratugnum. Sérhver ný tækni hefur
haft þau áhrif að jafnframt því að eyða at-
vinnutækifærum þá skapar hún ný verkefni
og ýtir undir þróun annarra. Vafalaust mun
sama gerast jafnframt tölvutækninni en
líkur eru á að hún muni skella yfir mun hrað-
ar en aðrar tæknibylgjur svo umhugsunar-
tíminn er ef til vill styttri nú fyrir verkalýðs-
hreyfinguna og stjórnmálamenn hennar að
bregðast við.
Verði til góðs
Til þess að tryggja rétt viðbrögð þarf
verkalýðshreyfingin að vera með í undirbún-
ingi og skipulagi fyrir framtíðina. Til þess að
áhrif breyttrar uppbyggingar atvinnulífsins
°g þjóðfélagsins vegna tölvutæknilegra
framfara, verði sem flestum til góðs þarf að
gera ráðstafanir af sóknarhug. Samfélagið
verður framvegis að vera virkara og hafa
meira frumkvæði gagnvart atvinnulífinu.
Opinbert fjármagn á að nota sem stjórntæki
í atvinnulífinu. Takmark þess á að vera til
þess að þeir sem missa atvinnuna vegna hinn-
ar nýju tækni fái önnur verkefni við sitt
liæfi.
Öll meiriháttar áhrif á atvinnulíf vestur-
landa koma fram og eru í eðli sínu alþjóðleg.
Ör tækniþróun í þessum löndum hefur við-
tæk áhrif á atvinnulíf annarra landa. Frá
sjónarhóli alþjóðlegrar verkalýðshreyfingar
eru áhrif örrar tækniþróunar svipaðs eða
jafnvel sama eðlis, hvar sem hún á sér stað.
Þess vegna er það verðugt verkefni alþjóða
samtaka stéttarfélaga að snúast gegn óæski-
legum áhrifum, sem fylgja þessarri tækni-
nýjung.
Þegar hagsntunir einkaágóðans ráða einir
ferðinni gleymast oft mikilvæg markmið eins
og t.d. aðlaðandi ytra umhverfi, örugg vinna
og framleiðsla vöru með raunverulegan til-
gang. Þegar ný tækni er tekin til nota vegna
105