Réttur - 01.01.1983, Blaðsíða 8
bara byrja stríðið og láta Vestur-Evrópu
þá verða fyrir fyrsta andsvarinu en ekki
Bandaríkin. — Eftir er að sjá hvort
alþýða V-Pýskalands, Frakklands og Eng-
lands lætur leiða sig til gereyðingar fyrir
ameríska auðvaldið, bara til þess það eigi
hægra með að myrða tugi milljóna af
íbúum Sovétríkjanna og eyðileggja varn-
arvirki þeirra.
Noregur, ísland, Grænland. Banda-
ríkin auka vígbúnaðinn í öllum þessum
löndum. Pað er þjarmað að Noregi, en
Norðmenn hafa samt ekki enn gefist upp.
— Hinir þægu þjónar á íslandi eru þeir
einu sem tekið hafa við Awacs-vélunum.
Hjá Nato-liðinu á íslandi fer þekkingar-
leysið, undirlægjuhátturinn og ofstækið
svo vel saman, að hér getur bandaríska
herstjórnin fengið allt sitt fram um leið
og þeir eru búnir að láta þjóna sína sparka
Alþýðubandalaginu úr ríkisstjórn. Pað
virðist ekki hvarfla að Nato-þrælunum
hvernig Bandaríkin hafa svikið allt sem
kynslóð þeirra Ólafs Thors og Hermanns
knúði það stórveldi þó til að lofa, er því
var réttur litli fingurinn. — Um örlög
íslensku þjóðarinnar virðast þessir legátar
skeyta jafnlítið og bandaríska morð-maf-
ían.
Nú eru það fyrirætlanir bandarísku
herstjórnarinnar að tvöfalda tölu Awacs-
flugvélanna hér á Keflavíkurvelli og stór-
auka almenna flugflotann sinn þar. Jafn-
framt vita allir hvert ofurkapp þessi her-
mafía leggur á að fá Helguvík undir sín
yfirráð til þess að geta margfaldað ben-
sínflutninginn til Vallarins og ráðið sjálfir
olíuhöfn og leiðslum úr henni.
Bandaríska hervaldið hefur þegar kom-
ið fyrir hlustunarkerfum hér á íslandi og
starfrækt um langan tíma í þeim tilgangi
að fylgjast með ferðum sovéskra kafbáta.
Nú hefur og verið gerður leynilegur samn-
ingur við Dani (1959) um að fá að setja
upp hlustunarkerfi (Loran C) í Ejde á
Færeyjum. Ennfremur hefur slíkt kerfi
verið sett upp í Angissoq í Grænlandi
1963.
Pað vantar ekki kröfurnar frá banda-
rísku yfirgangsseggjunum um að fá að
setja upp enn fleiri hernaðartæki hér
heima.
Alþýðubandalagið hefur getað þvælst
fyrir þessum morðvörgum, sem vilja fá
ísland sér til ráðstöfunar hvar sem vera
skal og gera alla þjóð vora að fórnar-
lömbum í því heimsstríði, sem þeir nú
undirbúa að hefja einhverntíma á tíma-
bilinu 1984-90.
Bandaríkjaher hefur svo tvær flug-
stöðvar nyrst í Grænlandi. „Thule“-stöð-
ina kannast íslendingar við. Með lang-
drægum kjarnorkueldflaugum má skjóta
þaðan yfir heimskautið á Síberíu, sem
Pentagonherrunum mun þykja líklegt að
sé minnst varði hluti Sovétríkjanna.
Enn þar að auki eru svo settar upp
stöðvar, sem bæði geta flutt upplýsingar
og fyrirskipanir á örskömmum tíma til
annara stöðva, er mynda keðju kringum
hnöttinn. Á korti af Grænlandi sést lítill
hluti þessarar keðju (Dye) og samband
hennar um Keflavík.
Og til að loka fyrirhuguðum eldhring
um Sovétríkin hafa svo Bandaríkin samið
við Japan um að setja upp í Misaura í
Hansku-eyju, 700 km norðan Tokio, gíf-
urlega flugstöð 1985 með kjarnorkuflug-
vélum (F16), er fljúga 900 km. Parna
verða til að byrja með 3500 hermenn.
Pá er hringurinn lokaður, árásin á
Sovétríkin undirbúin úr öllum áttum.
Alls hefur Pentagon 1500 herstöðvar í
32 löndum. Yfir hálf milljón hermanna er
8